Klæðning losnar af Turninum vegna óveðurs
Innlent | mbl | 22.11.2026 | 12:18
Klæðning hefur tekið að losna af Turninum í Kópavogi vegna veðurs. Björgunarsveitir eru á staðnum. Ljósmynd/Aðsend
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna klæðningar á Turninum í Kópavogi sem tekið hefur að losna vegna veðurofsa.
Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, er dágóður hópur björgunarsveitarmanna á staðnum.
„Það er verið að senda frekari verkfæri á staðinn svo hægt sé að skrúfa klæðninguna fasta og þetta er bara verkefni í vinnslu,“ segir Jón Þór í samtali við mbl.is.
Kind í sjálfheldu í Djúpavogi
Þá fengu björgunarsveitir tilkynningu um að girðing við Vatnsendatorg í Kópavogi hefði fokið til, en girðingin var notuð til að loka af framkvæmdasvæði.
Hvað varðar landsbyggðina segir Jón Þór að björgunarsveitin Bára sé lögð af stað í björgunaraðgerðir vegna kindar í sjálfheldu í Hamarsdal inn af Djúpavogi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗