Tók eftir einu sem hann hefur ekki séð áður hjá þessum leikmönnum Íslands

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.

Framherjar íslenska landsliðsins, Andri Lucas og Orri Steinn, hafa verið í fantaformi undanfarið og skoraði Andri fjögur í nýafstöðnum landsleikjaglugga.

„Mér fannst glitta í að það er að koma markakeppni milli Andra og Orra. Orri var helvíti fúll að vera ekki kominn með mark í seinni hálfleik og gerði ýmislegt til að reyna að skora. 

Þegar menn fara í slíkt getur það verið erfiðara heldur en þegar þetta er bara náttúrulegt,“ sagði Hörður og átti þar við leikinn við Lúxemborg hér heima.

„Orri gerði allt nema að skora í leiknum við Lúxemborg, það er hægt að orða það þannig,“ sagði Helgi.

„Ég held reyndar að hann hafi skorað þegar út í það er farið. Ég held að boltinn hafi verið inni,“ sagði Hörður, en skot Orra fór í slána og niður áður en Brynjólfur Willumsson skoraði.

Þátturinn er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab