Þorgerður Katrín: Við verðum dæmd af verkunum, ekki flokkaflakki einhverra einstaklinga
Ríkisstjórnin verður ekki metin af því hvort einhverjir flakki milli flokka. Hún verður metin af verkum sínum. Hluti af því að vera í pólitík er að fara í erfið mál til að vinna í haginn fyrir framtíðina. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, fagnar því að fólk vilji að hún sé meira heima á Íslandi en telur ekki þörf á að hún hverfi úr utanríkisráðuneytinu til að sinna hlutverki sínu sem formaður flokksins. Hún segir toppinn í pólitíkinni vera að fara um landið og ræða við fólk og verður á ferðinni hér innanlands á næstunni. Þorgerður Katrín er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Á endanum verður ríkisstjórnin, hún verður ekki metin af því hvort einstaklingar flakki á milli flokka. Hún verður metin af því hvernig hún skilar sínum verkum. Það er þannig sem þetta virkar og ég bind vonir við það að eftir að hafa farið og við erum að svona klára erfið mál og þá bind ég vonir við það að við sjáum þær ákvarðanir bera ávöxt fyrir almenning í landinu, litlu og meðalstóru fyrirtækin og líka fyrir ríkisstjórnarflokkana sem, sem slíka.
Þannig að þetta er hluti af því að vera í pólitík að fara í erfið mál, ekki bara af því þau eru erfið heldur af því það er langtímamarkmið um að auka hér hagsæld á Íslandi, auka hér öryggi og velferð og styrkja atvinnulífið og þess vegna erum við að þessu.“
Það náttúrlega leikur enginn vafi á því þegar horft er yfir ríkisstjórnina að þau ráðuneyti sem Viðreisn hefur, þetta eru þungavigtarráðuneyti, þetta er utanríkisráðuneytið, þetta er fjármálaráðuneytið, þetta er atvinnuvegaráðuneytið og þetta er dómsmálaráðuneytið. Öll ráðuneytin alger þungavigtarráðuneyti.
„Það er rétt.“
Heldurðu, svo ég sleppi þér ekki alveg strax frá þessu, kæmi það til greina af þinni hálfu að skipta við einhvern samráðherra þinn og fara í, ég nefni atvinnuvegaráðuneytið?
„Eins og ég segi, ég heyri alveg hvað fólk er að segja. Ég skil vel þessar vangaveltur. Ég vil fyrst vinna út frá því sem að við erum að gera núna. Ég ætla ekki að fara í það að bregðast við út af því að það eru ýmsir sem að hafa þessa skoðun og ég náttúrlega bara undirstrika það, ég er mjög fegin að fólk vill hafa mig sem mest heima. Ég er mjög glöð með það enda er eitt af því stóra sem hefur fengið mann til þess að halda áfram í pólitík, það eru þessi samtöl og fundir hér heima við fólkið að fá beint í æð, milliliðalaust, skoðanir og viðhorf fólks.
Ég var um daginn, heilan dag, á Skaganum, bæði með grasrót okkar þar en líka opinn fund. Ég er að fara núna og vera alla helgina fyrir vestan. Annars vegar einmitt grasrótarfund. Ég er að fara líka að heimsækja fyrirtæki, skólasamfélagið, en líka hafa opinn fund þar, hitta atvinnufyrirtækin, þetta finnst mér alltaf vera af topp þremur í íslenskri pólitík, það er að fara um landið og sjá bara beint hvernig samfélagið fúnkerar og hvað þarf að bæta.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗