Ríki ESB ætla ekki að samþykkja samninginn

Darragh O'Brien svarar spurningum blaðamanna á ráðstefnunni.

Darragh O'Brien svarar spurningum blaðamanna á ráðstefnunni. AFP/Yasin Akgul

Formennskuríki Evrópusambandsins sagði í dag að aðildarríki sambandsins myndu mótmæla því að umdeilt lokasamkomulag, sem verið er að semja um á loftslagsráðstefnunni COP31, yrði samþykkt.

„Við munum ekki styðja yfirlýsingu ráðstefnunnar … sem minnist ekki einu sinni á jarðefnaeldsneyti, sem er helsti drifkraftur loftslagsbreytinga,“ sagði Darragh O'Brien, ráðherra loftslags- og orkumála Írlands, sem fer nú með formennsku í Evrópusambandinu, á lokafundi ráðstefnunnar.

Ráðstefnunni „rænt“

Hann sagði jafnframt að loftslagsráðstefnunni hefði verið „rænt af nokkrum olíuríkjum“.

„Þetta ætti að vera augnablik til að ná áttum og horfast í augu við raunveruleikann, og loftslagsstefna ætti að byggjast á raunveruleikanum,“ sagði O'Brien.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab