Sótthreinsun verður áfram í Leifsstöð
Það er ekki flókið að sótthreinsa vöðlur og vöðluskó. Margir leigutakar annast þetta þegar veiðimenn koma erlendis frá. Mikilvægast er að sótthreinsa vöðlur og skó. Hér er notast við úðabrúsa og veiðimenn stíga ofan í fiskikar með sótthreinsilegi. Ljósmynd/Starir
Matvælastofnun – MAST leitar að nýjum aðila til að annast sótthreinsun á Keflavíkurflugvelli þegar fólk kemur erlendis frá með veiðibúnað. Fram til þessa hefur Isavia annast þessa þjónustu. Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá MAST segir að þjónustusamningurinn renni út um áramót. Heimilt er að koma með ósótthreinsaðan búnað en skylt að sótthreinsa hann áður en hann er notaður.
Matvælastofnun leitar að nýjum samstarfsaðia til að annast sótthreinsun á veiðibúnaði veiðimanna sem koma erlendis frá. Samningur við Isavia rennur út um áramót. Morgunblaðið/Eggert
Við höfum undanfarnar vikur fjallað um sóttvarnir hér á landi þegar veiðimenn koma til landsins. Sjaldan eða aldrei hefur meiri hætta verið staðar um að fá smit inn til landsins í laxveiðiárnar hér. Í Noregi hafa nokkrar ár orðið illa úti vegna sjúkdómsins UDN og ofan í hann sveppasýkinguna Saprolegnia sem drepur laxinn. Það gildir bæði um fullorðinn lax og seiðin sem eiga að standa undir komandi kynslóðum. Í viðtali sem við birtum hér fyrir helgi var rætt um sóttvarnir í Leifsstöð þegar ferðamenn koma til stangveiða. Tveir leigutakar laxveiðiáa ræddu um sóttvarnir. Þeir Haraldur Eiríksson sem leigir Laxá í Kjós og Hítará og Rafn Valur Alfreðsson sem leigir Miðfjarðará og rekur Norðurá í Borgarfirði. Báðir sjá þeir um sótthreinsun á veiðimönnum sem koma til veiða í umræddum ám. Þeir höfðu einnig báðir litla trú á sóttvörnum í Leifsstöð og höfðu miklar efasemdir um þá starfsemi og mátti skilja þá sem svo að slík sótthreinsun væri ekki í boði þar. Af þessu tilefni óskuðu Sporðaköst svara hjá Þóru yfirdýralækni hjá MAST.
Getur þú staðfest að sótthreinsun sé í boði á Keflavíkurflugvelli þegar kemur að veiðibúnaði stangveiðimanna sem koma til landsins?
„Já. Matvælastofnun er með samning við Isavia sem býður upp á sótthreinsun á veiðibúnaði við komu stangveiðimanna erlendis frá. Samningurinn rennur út um áramót en Matvælastofnun er að vinna í að semja við nýja aðila þar sem mikilvægt er að hafa greitt aðgengi að sótthreinsiþjónustu við komu fólks með notaðan veiðibúnað til landsins,“ svaraði Þóra.
Er eitthvað eftirlit í gangi? Margir veiðimenn koma til landsins á eigin vegum og eru ekki endilega að fara í ár þar sem er starfsfólk. Jafnvel bara með Veiðikortið og fara til veiða í fjölmörgum vötnum sem sá möguleiki býður upp á. Til dæmis Þingvallavatn?
„Það er meiri áhersla lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir og fræðslu en eftirlit, sér í lagi til hlutaðeigandi aðila, ss stangveiðifélaga, útleiguaðila ofl. Eftirlit er snúið í framkvæmd og skilar líklega litlum ávinningi í samanburði við fyrirbyggjandi aðgerðir og fræðslu.“
Er formleg skylda á leigutökum að sótthreinsa veiðibúnað erlendra veiðimanna?
„Skyldan hvílir á öllum sem koma til landsins með notaðan búnað. Lög um varnir gegn fisksjúkdómum tilgreina að ekki megi nota búnaðinn nema að undangenginni sótthreinsun. Hægt er að sótthreinsa búnaðinn fyrir brottför, við komu í Keflavík eða á mörgum veiðistöðum. Hagur leigutaka eða landeiganda sem eru undir er auðvitað mikill og því eru margir þeirra líka með boð um sótthreinsun og einstaka söluaðili veiðibúnaðar. Lögunum var breytt árið 2020 að norskri fyrirmynd, áður var óheimilt að flytja inn notaðan stangveiðibúnað en með lagabreytingunni varð óheimilt að nota ósótthreinsaðan notaðan búnað.“
Eru sóttvarnir af þessum toga í þeim farvegi að þú er sátt við hvernig að þessu er staðið?
„Ég vil gjarna efla enn betur meðvitund hagaðila og ferðafólks sem kemur til landsins í ljósi þess hvaða hagsmunir eru í húfi. Matvælastofnun hefur unnið að því undanfarið að tryggja að þessi mál séu í góðum farvegi og að áhættu á smiti í villta fiskistofna hér á landi sé haldið í algjöru lágmarki.“
Það er vissulega allra hagur að taka sameiginlega ábyrgð á því að fylgjast með að veiðimenn sem koma erlendis frá láti sótthreinsa þann búnað sem getur borið smit. Þar eru vöðlur og sérstaklega vöðluskór líklegasti smitberinn. Því miður hafa sýkingar og sníkjudýr gert mikinn skaða í löndunum í kringum okkur og sér ekki fyrir enda á því. Það gæti orðið óbætanlegur skaði ef eitthvað af slíkri óværu berst í íslenskar laxveiðiár.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 108 cm | Stóra Laxá | Jón Kristinsson | 27. september 27.9. |
| 100 cm | Laxá í Dölum | Reynir Sigmundsson | 26. september 26.9. |
| 102 cm | Fossá | Theodór Ingibergsson | 18. september 18.9. |
| 102 cm | Selá í Vopnafirði | Huginn Freyr Þorsteinsson | 4. september 4.9. |
| 103 cm | Laxá í Aðaldal | Auðunn Sigurðsson | 3. september 3.9. |
| 107 cm | Laxá í Aðaldal | Nils Folmer Jorgensen | 29. ágúst 29.8. |
| 102 cm | Hofsá | Bergþór Jónsson | 25. ágúst 25.8. |
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/58/3/1580353.jpg)

