Miley Cyrus er gift og hún og faðir hennar hafa grafið stríðsöxina

Söngkonan Miley Cyrus er gift. Hún og hennar heittelskaði, Maxx Morando, gengu upp að altarinu í gær.

TMZ greinir frá því að faðir Miley, Billy Ray Cyrus, hafi verið meðal gesta í brúðkaupinu sem gæti komið mörgum á óvart þar sem hann og dóttir hans hafa ekki verið á góðum stað undanfarin ár eftir að Billy Ray skildi við móður Miley, Tish Cyrus, árið 2022. Skilnaðurinn klauf fjölskylduna. Miley, systir hennar Brandi og bróðir hennar Trace stóðu með móður sinni eftir skilnaðinn á meðan systkini þeirra, Noah og Braison, stóðu með föður sínum.

Tish hefur þó fundið ástina aftur. Hún giftist leikaranum Dominic Purcell árið 2023 en hvorki Noah né Braison létu sjá sig í brúðkaupinu. Miley og Brandi voru brúðarmeyjar.

Miley ákvað þó að sættast við föður sinn á síðasta ári og viðurkenndi að líklega hafi hún tekið sársauka móður sinnar inn á sjálfa sig. Það hafi orðið auðveldara að fyrirgefa eftir að báðir foreldrar hennar höfðu fundið hamingjuna aftur, en Billy Ray er nú trúlofaður leikkonunni Elizabeth Hurley sem fylgdi honum í brúðkaupið í gær.

Eiginmaður Miley er trommari hljómsveitarinnar Liily. Brúðkaupið fór fram í Palm Springs í Kaliforníu og var þar mikið um dýrðir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab