Van Dijk: „Ef ekki, þá kveð ég í sumar“
Fyrirliði Liverpool, Virgil Van Dijk, talaði um framtíð sína hjá félaginu í viðtali við SkySports fyrir leik gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Mikið hefur verið rætt um framtíð Hollendingsins á dögunum en hann kom til félagsins árið 2017 frá Southampton. Samningur Van Dijk rennur út í sumar og hefur hann ekki útilokað það að yfirgefa félagið.
„Aðalatriðið fyrir mig er að mér líði vel og ég hugsa vel um mig. Mér finnst ég enn eiga mörg ár eftir í fótboltanum. Það kemur bara í ljós hvað ég geri eftir þetta tímabil. Ef einhver segist vita hvað ég ætla að gera, þá hefur hann rangt fyrir sér þar sem ég veit það ekki einu sinni sjálfur.“
„Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag, næstum tíu ár, og það hefur verið stór hluti af lífi mínu. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir allt sem gerðist á þeim tíma. Ef samningurinn minn verður framlengdur þá sjáum við til. Ef ekki, þá kveð ég í sumar.“
Liverpool mætir Manchester United á Anfield klukkan 16:30 í dag og verður hægt að fylgjast með gangi málanna í beinni textalýsingu á mbl.is.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗