Real Madrid á rosalegu flugi

Leikmenn Real Madrid fagna marki Carlos Espi.

Leikmenn Real Madrid fagna marki Carlos Espi. AFP/Javier Soriano

Real Madrid vann nauman sigur gegn Celta Vigo, 2:1, í 13. umferð efstu deildar Spánar í knattspyrnu á Santiago Bernabau í gærkvöldi.

Þar með jafnar Real erkifjendur sína í Barcelona að stigum en þar sem Börsungar eiga eftir að spila sinn leik í þessari umferð en þeir mæta Villareal seinna í dag.

Real Madrid hefur verið á rosalegu flugi þar sem liðið hefur nú unnið níu leiki í röð og ásamt því að vera jafnt Barcelona í efsta sæti spænsku deildarinnar er liðið einnig jafnt París SG í efsta sæti Meistaradeildar Evrópu með 12 stig. 

Níu leikja sigurganga Real var hins vegar í hættu í gærkvöldi þar sem eftir aðeins sex mínútna leik kom Pablo Duran gestunum yfir.

Kylian Mbappé fékk síðan tækifæri til að jafna metin rétt fyrir hálfleik þegar Real Madrid fékk vítaspyrnu en þrumaði boltanum hátt yfir markið. 

Jöfnunarmarkið kom ekki fyrr en á 66. mínútu þegar Jude Bellingham kom boltanum í netið og svo var það hinn 21 árs gamli Carlos Espi sem tryggði sigurinn á 85. mínútu.

Real Madrid mætir PSV í Meistaradeildinni á þriðjudaginn kemur.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab