Ráðherra sagði af sér eftir gervigreindarsvindl
Menntamálaráðherra Suður-Kóreu sagði af sér í morgun vegna hneykslismáls þar sem gervigreind kom við sögu.
Málið kom upp í aðdraganda mikilvægra inntökuprófa landsins í háskóla í síðustu viku.
Ótti við prófsvindl með aðstoð gervigreindar hefur gripið um sig í landinu frá því fyrir viku síðan, þegar sá sem náði hæstu einkunn á landsprófi fyrir skattaendurskoðendur játaði að hafa notað örsmáa myndavél og snjallsíma til að ná næstum fullkominni einkunn, aðeins fjórum dögum fyrir hið mikilvæga inntökupróf í háskóla sem kallast Suneung.
Fyrirbyggandi aðgerðir
Hið árlega níu klukkustunda Suneung-próf er almennt talið aðgöngumiði að virtum háskólum, vel launuðum störfum og jafnvel betri möguleikum á hjónabandi í Suður-Kóreu þar sem samkeppnin er gríðarleg.
Játningin varð til þess að embættismenn kepptust við að innleiða fjölda fyrirbyggjandi aðgerða, meðal annars að loka fyrir almennt þráðlaust net á prófsvæðum og líma límmiða yfir hnappa á fatnaði, en Choi Kyo-jin menntamálaráðherra átti erfitt með að róa almenning, einkum eftir ummæli sem hann lét falla þremur dögum fyrir prófið.
Axlaði ábyrgð
„Prófinu lauk án meiri háttar atvika ... Sem ábyrgur ráðherra tel ég mig þó ekki undanskilinn gagnrýni almennings um að við höfum ekki undirbúið okkur nægilega vel fyrir fram,“ skrifaði Choi á X.
„Nú þegar prófinu er lokið axla ég fulla ábyrgð og segi hér með af mér,“ bætti hann við.
Lee Jae Myung forseti hefur samþykkt afsögn hans, að sögn forsetaembættisins.
Ekki viss vegna aldurs
Þegar hann var spurður við þingyfirheyrslu síðastliðinn mánudag hvort hann væri þess fullviss að yfirvöld gætu staðið þá að verki sem hygðust svindla á prófdeginum svaraði hinn 72 ára gamli ráðherra: „Vegna aldurs míns er ég ekki viss um að ég gæti það.“
Svar hans vakti fljótt hörð viðbrögð almennings.
Choi kom ekki fram á blaðamannafundum dagana fyrir prófið á fimmtudag, þar sem aðstoðarráðherra kynnti fyrirbyggjandi aðgerðirnar í hans stað.
Embættismenn sögðu að 111 tilvik um misferli tengd rafeindatækjum hefðu komið í ljós í prófinu á fimmtudag, og var nærri helmingur þeirra greindur með þremur neyðartilkynningum sem stjórnvöld sendu út til að finna snjallsíma sem þeir sem tóku prófið höfðu ekki skilað inn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
