Raskanir á innanlandsflugi vegna veðurs
Seinka þurfti þremur innanlandsflugum frá Reykjavík í morgun sökum veðurs. mbl.is/Árni Sæberg
Seinka þurfti þremur innanlandsflugferðum til og frá Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna veðurs.
„Vélarnar sem áttu að fara til Akureyrar og Egilsstaða í morgun fóru ekki, en áætlað er að þær fari núna eftir hádegi,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is.
Nokkurra klukkustunda seinkun
Fyrsta vélin til Akureyrar átti að fara í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 8 í morgun, en áætluð brottför er núna klukkan 13 í dag.
Seinni vélinni til Akureyrar hefur aðeins verið seinkað um 40 mínútur og er nú áætluð brottför klukkan 13.20 í stað 12.40.
Morgunfluginu til Egilsstaða, sem áætlað var klukkan 8.30 í morgun, hefur einnig verið seinkað til klukkan 13.
Guðjón hvetur farþega til að fylgjast vel með áætluðum brottfarartímum á vef innanlandsflugvalla Icelandair.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗