Ný rannsókn – Svefnleysi hindrar heilann í að gleyma ótta

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 11:30

Hún nær ekki að gleyma óttanum fyrst hún er andvaka.

Þú kannast kannski við tilfinninguna um að liggja andvaka og hugsanirnar eru á fleygiferð. Hjá mörgum tengjast andvaka og óróleiki og gera hvort annað verra. En af hverju er svo erfitt að rjúfa þessa hringrás?

Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem var birt um miðjan október í vísindaritinu PLOS Mental Health, kemur fram að líffræðileg skýring geti verið á þessu. Hún er að heili fólks, sem glímir við svefnleysi, á erfiðara með að læra að hættuleg upplifun er ekki lengur hættuleg.

Það voru vísindamenn við NYU Tandon School of Engineering og Harvard Medical School sem gerðu rannsóknina. Þeir fylgdust með 48 fullorðnum. 24 glímdu við svefnleysi og hinir 24 áttu ekki í neinum vanda með að sofa.

Þátttakendunum var sýnt sjónrænt merki sem var parað við vægt raflost. Þegar heilinn hafði lært að óttast merkið, var það sýnt aftur en ekkert raflost fylgdi. Markmiðið var að heilinn átti að læra að merkið væri ekki lengur hættulegt. Stressviðbrögð þátttakendanna voru mæld í gegnum svitaframleiðslu húðarinnar en það er viðurkennd aðferð við að mæla hversu mikið líkaminn er á varðbergi.

Hjá þeim sem sváfu vel minnkuðu stressviðbrögðin smám saman samhliða því að heilinn uppgötvaði að merkið var ekki hættulegt. Hjá þeim sem glímdu við svefnskort gerðist hið gagnstæða og stressið jókst, meira að segja þegar hættan var liðin hjá.

„Rannsóknin sýnir að svefnleysi snýst ekki bara um svefn. Það tengist beint getu líkamans til að læra og muna að hætta sé liðin hjá,“ sagði Tianyu Hwang, aðalhöfundur rannsóknarinnar.

Munurinn var greinilegastur þegar vísindamennirnir tóku tillit til stressstigsins í bakgrunninum, það er að segja ástandið þegar líkaminn er stöðugt á varðbergi. Þetta passar við kenningu um að fólk, sem glímir við svefnleysi, sé alltaf á varðbergi.

Niðurstaða rannsóknarinnar gæti verið hluti af skýringunni á af hverju það er oft erfitt að takast á við kvíða hjá fólki sem glímir við svefnvandamál.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab