Hólmbert hóf frábæra endurkomu
Hólmbert Aron Friðjónsson var á skotskónum í sigri Gwangju gegn Bucheon, 4:2, í 36. umferð efstu deildar Suður-Kóreu í knattspyrnu í nótt.
Gwangju er hins vegar fallið úr deildinni þegar aðeins tveir leikir eru eftir af tímabilinu en liðið er í neðsta sætinu, sjö stigum á eftir Bucheon.
Gwangju byrjaði illa í nótt og var komið tveimur mörkum undir eftir 34 mínútur. Það var hins vegar Hólmbert sem hóf endurkomu Gwangju þegar hann kom boltanum í netið á 37. mínútu leiksins.
Bucheon fékk síðan beint rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks sem breytti gangi leiksins og náði Gwangju að bæta við þremur mörkum og kreista fram sigur.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/53/1675341.jpg)