Hólmbert hóf frábæra endurkomu

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði.

Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði. Ljósmynd/Gwangju

Hólmbert Aron Friðjónsson var á skotskónum í sigri Gwangju gegn Bucheon, 4:2, í 36. umferð efstu deildar Suður-Kóreu í knattspyrnu í nótt.

Gwangju er hins vegar fallið úr deildinni þegar aðeins tveir leikir eru eftir af tímabilinu en liðið er í neðsta sætinu, sjö stigum á eftir Bucheon.

Gwangju byrjaði illa í nótt og var komið tveimur mörkum undir eftir 34 mínútur. Það var hins vegar Hólmbert sem hóf endurkomu Gwangju þegar hann kom boltanum í netið á 37. mínútu leiksins.

Bucheon fékk síðan beint rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks sem breytti gangi leiksins og náði Gwangju að bæta við þremur mörkum og kreista fram sigur.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab