Landgöngubrúm var lokað á Keflavíkurflugvelli

Smávægilegar tafir urðu á komum og brottförum flugvéla á Keflavíkurflugvelli í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einhverjar raskanir urðu á flugferðum Icelandair í nótt og í morgun vegna veðurs, en öllum landgöngubrúm Keflavíkurflugvallar var lokað klukkan tvö í nótt.

Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, urðu smávægilegar tafir vegna þessa, en landgangarnir voru teknir aftur í notkun rétt fyrir klukkan 7 í morgun.

„Í einhverjum tilvikum þurfti fólk að bíða í stutta stund í vélunum áður en landgangarnir voru opnaðir aftur,“ segir Guðjón.

Smávægilegar raskanir

Hann hvetur fólk til að fylgjast vandlega með gangi mála á vefsíðu Icelandair á meðan mesti vindhraðinn gengur yfir. 

„Það gætu orðið einhverjar tafir en eins og staðan er núna þá eru þær ekki langvarandi,“ segir Guðjón.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab