Hver er dýrasta og ódýrasta jólamáltíðin?
Senn líður að jólum og jólin kosta peninga, sérstaklega í dýrtíð eins og nú er. Íslendingar halda gjarnan í hefðirnar og borða ávallt það sama um jólin, sérstaklega á aðfangadagskvöld, okkar hátíðlegustu stund ársins.
DV renndi yfir sviðið og athugaði hvað helstu jólamáltíðir Íslendinga kosta. Það er máltíð fyrir fjóra, keypt í lágvöruverslun og elduð heima. Sjón er sögu ríkari.
Hamborgarhryggur
Hamborgarhryggur er langvinsælasti jólamatur Íslendinga. Í könnun Maskínu frá árinu 2022 kom fram að hátt í helmingur, eða rúmlega 43 prósent, landsmanna borða hann á aðfangadagskvöld.
Kílóverðið á hamborgarhrygg er gjarnan á bilinu 1700 til 2400 krónur, dýrari ef úrbeinaður. Má því ætla að tveggja kíló hryggur kosti um 3500 til 5200 krónur.
Með þessu er gjarnan notaður sykur, rjómi, gljái, sinnep og oft ananas sneiðar. Sem getur kostað á bilinu 1000 til 1800 krónur.
Meðlætið eru gjarnan sykraðar kartöflur, rauðkál, grænar baunir og Waldorf-salat. Efnið í þetta í lágvöruverslunum kostar gjarnan á bilinu 2500 til 3500 krónur.
Í heildina gerir þetta því um 7000 til 10500 krónur, eða allt að 2625 krónum á mann.
Hangikjöt
Hangikjötið er sígildur íslenskur jólamatur þó að reyndar borði margir hann frekar á jóladag eða annan í jólum en á aðfangadag.
Hangikjöt er nokkuð dýrara en hamborgarhryggur en ekki þarf eins mikið af því. Það er 1,2 kíló fyrir fjóra. Kílóverð er gjarnan í kringum 5000 krónur en ódýrara ef um er að ræða frampart, það er gjarnan 3700 til 4700 krónur.
Laufabrauðið er dýrasta meðlætið, það er dunkur af því kostar hátt í 3000 krónur. En annað meðlæti er frekar ódýrt. Það er grænar baunir, rauðkál, kartöflur og efni í uppstúf sem er yfirleitt sú sósa sem er notuð með hangikjöti. Það er á bilinu 1600 til 2500 krónur.
Heildarverðið ætti því að vera á bilinu 10500 til 12000 krónur, eða allt að 3000 krónur á mann.
Kalkúni
Um 10 prósent Íslendinga borða kalkún á aðfangadag. Hann er einnig algengur veislumatur um áramót og páska.
Helsta „vandamálið“ við kalkún er að hann er stór. 4,5 kílóa fugl kostar yfirleitt á bilinu 5000 til 6800 krónur sem er of mikið fyrir fjóra. Eins og gefur að skilja verða þá miklir afgangar. Hægt er að kaupa kalkúnabringur til að minnka kostnað og afganga en hluti af hátíðastemningunni er hins vegar að fylla kalkúnann og svo eru margir sem vilja bara leggi.
Rétt eins og með hamborgarhrygg er gott að hafa rauðkál, rjómasósu og Waldorf salat með kalkún. En í staðinn fyrir brúnaðar kartöflur er ekki verra að hafa stöppu af sætum kartöflum. Samanlagt efni í fyllingu og meðlæti er því um 4200 til 6800 krónur.
Heildarverð fyrir máltíð með heilum fugli er því um 9200 til 12600 krónur, eða allt að 3150 krónur á mann.
Rjúpur
Það er varla til íslenskari jólamatur en rjúpur en hins vegar borða aðeins um 6 prósent landsmanna þær á aðfangadag. Það er vegna þess að til þess að fá rjúpur þarftu annað hvort að veiða þær sjálfur eða þekkja veiðimann. Algjört sölubann er á rjúpum til þess að verja stofninn.
Meðlætið er hins vegar gjarnan brúnaðar kartöflur, villibráðarsósa, rauðbeðusalat og Waldorf salat. Gjarnan á bilinu 3500 til 5000 krónur, aðeins meira ef notað er vín út í sósuna. Það er því einnig heildarkostnaðurinn við rjúpur án þess að rjúpurnar sjálfar fylgi með.
Wellington
Wellington steikur eru með nýlegri hefðum íslenskra fjölskyldna til að borða um jólin og líka einhver sú dýrasta.
Kílóa nautalund getur kostað frá 6000 upp í 10000 krónur. Þá á eftir að kaupa sveppi, lauk, skinku, smjör, sinnep og fleira í hjúpinn og fyllinguna. Samanlagt um 2500 til 3500 krónur.
Með Wellington steikinni er gott að hafa kartöflur, til dæmis Hasselback kartöflur, grænar baunir, rauðvíns eða sveppasósu og aspas. Gjarnan um 2500 til 3500 krónur til viðbótar.
Heildarverð fyrir fjóra er því um 11000 til 17000 krónur, eða allt að 4250 krónum á mann.
Hnetusteik
Ekki allir borða kjöt. Á diskum vegan fólks má gjarnan sjá hnetusteikur um jólin. Hægt er að kaupa hnetusteikina tilbúna og þá þarf vanalega um tvo pakka fyrir fjóra, eða um 4400 til 5400 krónur. Ef gera á hnetusteik frá grunni kostar hráefnið, hneturnar, sætar kartöflur, sveppir, krydd og fleira, 3200 til 4500 krónur.
Vegan meðlæti með hnetusteik má hafa brúnaðar kartöflur, vegan Waldorf salat, rauðkál, grænar baunir og sveppasósa. Í heildina kostar máltíðin 6500 til 10200 fyrir fjóra eða allt að 2550 krónur á mann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗