Nær samfelld rigning næstu þrjá sólarhringa
„Skilin munu halda sig yfir vestan- og suðvestanverðu landinu til morguns,“ segir Einar. Kort/Facebook-síða Einars
„Takið eftir samfellda skýjabakkanum frá vestanverðu Íslandi, og teygir sig til suðurs og suðausturs alla leið til N-Ítalíu!“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Facebook-síðu sinni, þar sem hann talar um lægðina sem er núna yfir landinu.
Hann nefnir að langt í vestri berist kalt loft út á Atlantshafið, en eins og sakir standa sé allt í nokkuð góðu jafnvægi.
„Skilin munu halda sig yfir vestan- og suðvestanverðu landinu til morguns og áfram verður flæði af mildu lofti til okkar, trúlega fram á þriðjudag. En það kemur til með að rigna nokkuð sunnan- og einkum suðaustanlands og nær samfellt næstu þrjá sólarhringa,“ segir Einar.
„Suðvestanlands hefur verið hvasst í morgun, en þegar þetta er skrifað er aðeins farið að sljákka í vindinum. Hviður hafa mælst yfir 35 m/s, m.a. undir Hafnarfjalli og þær hefta för ferðalanga.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗