Þuklað á pungi vegna veðurs

Tvíhöfði, Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson, halda upp á 30 ára brúðkaupsafmæli með sýningu.

„Samband okkar tveggja er náið; bæði samstarfið og vináttan. Við höfum oft sett okkur fram sem pör, gjarnan sem karl og konu og ég hef nú oftar en ekki verið í hlutverki konunnar og fengið mikið hrós fyrir. Oft hefur verið sagt að ég sé mjög glæsileg kona, sem er eitt sérkennilegasta hrós sem ég hef fengið. Og nú höldum við einhvers konar brúðkaupsafmæli,“ segir Jón Gnarr í viðtali við Sunnudagsblaðið. 

Stórsýning í Hörpu

„Hugmyndin kviknaði að fagna áfanganum með einhverjum hætti og ákváðum við að vera með tvær sýningar þann 27. nóvember, en uppselt er á seinni sýninguna. Þarna verður öllu til tjaldað og ég mun bregða mér í nokkur gervi, meðal annars verð ég Suðu-Sigfús. Ég ætla líka að vera maðurinn með veðurpunginn, en í sveitinni hafði fólk fengið að þukla á honum punginn til að vita hvernig veðrið yrði. Við endurvekjum þennan ágæta mann. Síðan kemur bandaríski milljarðamæringurinn Adrian Nigelson sem mætir með konu sinni sem leikin verður af Guggu í gúmmíbát. Hann stígur upp frá dauðum og mun deyja á sviði.

Verður fleira rifjað upp?

Já, þetta hefur verið gríðarlega viðburðaríkt hjónaband.

Rætt er við Jón í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab