Lygileg tölfræði Wembanyama – Flautukarfa í New York

Wembanyama átti stórleik í nótt.

Wembanyama átti stórleik í nótt. RONALD CORTES

Franska stórstjarnan Victor Wembanyama átti stórleik er San Antonio Spurs sigraði New Orleans Pelicans, 114:91, í NBA-deildinni í Texas í nótt. 

Með sigrinum tyllti Spurs sér á topp vesturhluta deildarinnar með 14 sigra og aðeins þrjú töp. Liðið byrjaði tímabilið ekkert sérlega vel þar sem það tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum en nú hefur liðið unnið 14 af síðustu 15 leikjum.

Wembanyama, eða Wemby eins og hann er oft kallaður, fór mikinn og skoraði 50 stig, tók 18 fráköst, varði fimm skot og var með fjóra stolna bolta. 

Spennutryllir í New York

New York Knicks hafði betur gegn Portland Trailblazers með minnsta mun, 97: 96, í New York í nótt.

New York, sem eru ríkjandi NBA-meistarar, byrjuðu af miklum krafti og voru komnir með 26 stiga forystu í lok annars leikhluta.

Portland náði hins vegar að klóra sig til baka og komst yfir í fyrsta sinn þegar aðeins 3,2 sekúndur voru eftir.

Knicks þurfti þá þriggja stiga körfu til að vinna leikinn og var það Mikal Bridges sem hitti úr þriggja stiga flautukörfu og tryggði sigurinn.

THIS ANGLE OF MIKAL BRIDGES @TISSOT BUZZER-BEATER 🔥 🚨⏰ Everyone Gets 24 (via: @nyknicks) https://t.co/x71EepLmpX

— NBA (@NBA) November 22, 2026

Önnur úrslit næturinnar í NBA-deildinni

Minnesota Timberwloves - Memphis Grizzlies 104:95

Dallas Mavericks - Los Angeles Clippers 110:100

Sacramento Kings - Boston Celtics 97:96

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab