Áhugaverðar vangaveltur um Haaland - Óhugsandi skref?
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.
Menn velta því endalaust fyrir sér hvað verður um Manchester City vegna fjárhagsbrota og þá hvert stjörnuleikmenn liðsins fara ef refsingin verður þung.
Nokkrum nöfnum var kastað fram í þættinum, þar á meðal Erling Braut Haaland. Hörður var ekki lengi að svara.
„Barcelona eða Real Madrid,“ sagði hann.
„Þú sérð enga sviðsmynd þar sem hann endar í Liverpool eða Arsenal? Það er laust níu-slot hjá okkur,“ velti Helgi upp og átti þar við Arsenal.
„Ég sé hann þá frekar fara í Manchester United,“ sagði Hörður léttur en Helgi gat ekki tekið undir það.
Þátturinn er í spilaranum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗