Paolo Bulgari er látinn

Paolo Bulgari.

Paolo Bulgari. Skjáskot/Instagramsíða Bvlgari

Ítalski skartgripasmiðurinn Paolo Bulgari, sem átti þátt í að gera fjölskyldufyrirtækið að alþjóðlegu lúxusvörumerki, er látinn í Róm, 89 ára að aldri.

Fjölskylda hans greindi frá andlátinu og minntist hans sem „mesta skartgripasmiðs okkar tíma“, að því er fram kemur í ítölskum fjölmiðlum.

Paolo Bulgari var stjórnarformaður Bvlgari-samsteypunnar frá árinu 1984 og hafa skartgripir fyrirtækisins prýtt Hollywood-stjörnur og kóngafólk, þar á meðal Díönu prinsessu af Wales, að sögn BBC.

Fyrirtækið Bvlgari birti minningarorð á netinu um þessa „sönnu skapandi sál“, sem myndi með verkum sínum „halda áfram að veita komandi kynslóðum innblástur“.

Fyrirtækið Bulgari var stofnað í Róm undir lok 19. aldar af afa hans, gríska silfursmiðnum Sotirios Voulgaris, sem síðar breytti nafni sínu í Bulgari upp á ítölsku.

Voulgaris var upprunalega frá Paramythia, fjallaþorpi í Epírus-héraði í norðvesturhluta Grikklands sem er þekkt fyrir silfurskartgripi sína. Hann flúði undan yfirráðum Ottómana og settist að í Napólí áður en hann opnaði verslun í Róm.

Paolo Bulgari hóf störf hjá fyrirtækinu skömmu eftir að hann lauk skólagöngu og varð sérfræðingur í eðalsteinum. Að lokum tók hann við stjórn fyrirtækisins og hafði umsjón með vexti þess á alþjóðavettvangi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab