Þak var við það að fjúka af húsi
Innlent | mbl | 22.11.2026 | 9:58
Brunavarnir Suðurnesja voru kallaðar út í morgun þar sem bárujárnsþak var við það að fjúka af húsi í Keflavík sökum veðurofsa.
Að sögn Péturs Óla Péturssonar aðstoðarvarðstjóra gekk ágætlega að ná tökum á aðstæðum þrátt fyrir miklar vindhviður og vinnur slökkviliðið nú að því að festa þakið kyrfilega niður.
Snarpar vindhviður
„Í morgun um áttaleytið voru eitthvað um 30 metrar á sekúndu. Svo dettur vindurinn niður í 18 metra þegar við förum. Svo kemur þetta í hviðum.“
Notast þurfti við stigabíl til að komast upp að þakinu, en eðli málsins samkvæmt tekur slíkt tæki á sig mikinn vind. „Við förum ekki upp fyrir húsið, við erum bara í þakbrúninni og í skjóli þar,“ segir Pétur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/62/40/1624025.jpg)