„Ég var eiginlega bara svolítið „heartbroken“ yfir þessu“

Annie Mist Þórisdóttir er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

Annie Mist Þórisdóttir hefur helgað stóran hluta ævinnar líkamsrækt og þjálfun en þegar hún ákvað að hjálpa móður sinni að komast í betra form gekk ekkert eins og hún hafði ætlað. Reynslan varð til þess að Annie fór að kynna sér sérstaklega áhrif breytingaskeiðsins á líkama kvenna. Í hlaðvarpinu Marta María býður heim segir Annie Mist frá því hvernig hugmyndin að líkamsræktarappinu Empower by dóttir varð til.

Á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir og Annie gekk með sitt fyrsta barn hafði hún loksins tíma til að hjálpa móður sinni að ná markmiðum sínum í líkamsrækt. Móðir hennar hafði fundið fyrir minni orku, var farin að sofa verr og hafði áhyggjur af því að geta ekki lengur tekið þátt í sömu tómstundum og eiginmaður hennar. Annie ákvað því að taka málin í sínar hendur.Hún skipulagði æfingar og mataræði fyrir móður sína og foreldrar hennar mættu reglulega til hennar í æfingar.

Pabbinn komst í sitt besta form

Eftir þrjá mánuði kom hins vegar í ljós að árangurinn var mjög mismunandi. Faðir hennar hafði komist í frábært form á meðan móðir hennar hafði aðeins misst um tvö kíló og fundið fyrir lítilsháttar aukinni orku. Annie segir að niðurstaðan hafi valdið henni miklum vonbrigðum.

„Ég var eiginlega bara svolítið „heartbroken“ yfir þessu,“ segir hún.

Hún fór að velta því fyrir sér hvers vegna æfingarnar skiluðu ekki þeim árangri sem hún hafði búist við.

Fór að rannsaka breytingaskeiðið

Eftir nokkrar svefnlausar nætur ákvað Annie að kynna sér betur áhrif hormónabreytinga á þjálfun kvenna.

Hún leitaði meðal annars í þekkingu dr. Stacy Sims, sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á lífeðlisfræði kvenna og þjálfun.

„Ég var að láta mömmu gera alla ranga hluti,“ segir Annie um það sem hún taldi sig hafa lært.

Hún útskýrir að hún hafi áður lagt mikla áherslu á langar þolæfingar og léttari styrktaræfingar en farið að telja að þyngri styrktarþjálfun, styttri ákafar lotur og markviss hvíld gætu hentað móður sinni betur.

Annie segir að þessi reynsla hafi breytt því hvernig hún hugsaði um þjálfun og orðið grunnurinn að Empower by dóttir þar sem lögð er áhersla á skipulagðar styrktaræfingar fyrir konur.

Hún segir jafnframt að mikilvægt sé að hver kona finni álag sem hentar eigin getu.

„Þungt fyrir mig er allt annað en að lyfta þungu fyrir þig,“ segir hún.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is og á öllum helstu streymisveitum. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab