Ná ekki árangri undir stjórn Ratcliffe
Heimildarmaður Morgunblaðsins sem áður var háttsettur hjá Manchester United telur að Glazer-fjölskyldan sé farin að iðrast þess að hafa veitt Sir Jim Ratcliffe yfirráð yfir rekstri félagsins til þriggja ára.
„Ég held að þau sjái eftir þessu, því í raun hefur þetta leitt til þess að tekjur af viðskiptahliðinni hafa verið afleitar. Þau eru heldur ekki hrifin af því hversu mörgum hefur verið sagt upp störfum. Ég hef heyrt að Glazer-fjölskyldan sé orðin langþreytt á þessu, og eftir því sem ég best veit höfðu þau talsverð áhrif á ráðningu [Mauricios] Pochettinos [í starf knattspyrnustjóra].
Kannski fer þolinmæði Glazer-fjölskyldunnar að þrjóta. Þau fara enn með meirihluta atkvæðisréttar hjá félaginu og geta hvenær sem er tekið stjórn á knattspyrnurekstrinum aftur í sínar hendur. Ástandið hefur versnað undanfarin tímabil og hugsanlega vilja þau finna kaupanda sem getur tekið félagið alfarið yfir. Með INEOS við stjórnvölinn sé ég ekki fyrir mér að félagið nái árangri.“
Átti að fá starfið 2016
Heimildarmaður okkar heldur því fram að argentínski knattspyrnustjórinn hafi verið við það að fá starfið fyrir réttum tíu árum. „Við ætluðum að ráða Pochettino sem knattspyrnustjóra. Allt var klárt. En þá sagði einn úr Glazer-fjölskyldunni: ‚Við höfum ekki unnið titil í þrjú ár, við þurfum sigurvegara – þess vegna verðum við að fá Mourinho.‘“
Þessi ákvörðun ruddi brautina fyrir mikla eyðslu, þar sem United fékk til sín nokkur af stærstu nöfnunum í knattspyrnuheiminum. „Zlatan, Pogba, Mkhitaryan – sem hafði rétt áður verið valinn leikmaður ársins í Þýskalandi – þetta var eins og að búa til eins konar Real Madrid, en í mun harðara samkeppnisumhverfi. Með þessu er maður í raun ekki að byggja upp frá grunni; maður er að kaupa bestu leikmenn heims, sem allir eru á launum sem nema tugum milljóna punda. Ég held að það geti verið býsna erfitt, nema því fylgi rétta skipulagið.“
Ítarlega fréttaskýringu um vanda Manchester United á umliðnum árum er að finna í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
