Ríkisstjóri segir fulltrúa ICE „stjórnlausa“

Ríkisstjóri Washington-ríkis sagði fulltrúa ICE vera „stjórnlausa“. AFP/Charly Triballeau

Ríkisstjóri Washington-ríkis sagði fulltrúa Toll- og innflytjendaeftirlitsins í Bandaríkjunum, ICE, vera „stjórnlausa“ eftir að þeir handtóku tvo einstaklinga á aðalflugvelli Seattle á laugardag.

Fulltrúarnir hafa gert rassíur víðs vegar um Bandaríkin sem hluta af hertum aðgerðum Donalds Trump forseta í innflytjendamálum. Þeim hefur verið haldið áfram þrátt fyrir að kjósendur hafi snúið baki við honum í þingkosningunum fyrr í þessum mánuði.

Myndskeið sem dreift var víða á samfélagsmiðlum á laugardag sýndi grímuklædda menn handsama tvo einstaklinga í landgangi á flugvellinum.

ICE staðfesti síðar að það hefði handtekið tvo einstaklinga sem það sagði hafa dvalið lengur en vegabréfsáritanir þeirra heimiluðu.

Bob Ferguson, ríkisstjóri Washington, sagði stofnunina vera „algjörlega og gersamlega stjórnlausa“.

„Eins og margir Bandaríkjamenn er ég ævareiður yfir grímuklæddum fulltrúum sem gera ekki grein fyrir sér, draga fólk út úr landgöngum þegar það gengur um borð í flugvél og valda glundroða í samfélögum okkar,“ skrifaði Ferguson á X.

„Aðgerðirnar í dag á Seattle-Tacoma-alþjóðaflugvellinum eru aðeins nýjasta dæmið um aðferðir ICE sem eru alls ekki í anda Bandaríkjanna.“

Ferguson sagði á blaðamannafundi að fulltrúar ICE kynnu að hafa brotið lög ríkisins sem takmarka andlitshulur löggæslumanna og að hann væri að kanna hvernig þeir komust inn í landganginn.

Mótmælandi handtekinn í New York í síðasta mánuði þar sem dauða Oscar Belgal, sem var skotinn til bana af ICE, var mótmælt. AFP/Adam Gray

Sögðu aðgerðina markvissa 

ICE sagði fulltrúa sína hafa „framkvæmt markvissa aðgerð til að handtaka Ricardo Larrondo Mendoza, ólöglegan innflytjanda frá Mexíkó sem dvaldi lengur en vegabréfsáritun hans heimilaði“ á laugardagsmorgun.

Stofnunin staðfesti að hún hefði handtekið annan einstakling sem hún sagði að yrði ákærður fyrir árás á alríkisfulltrúa og hélt því fram að konan hefði skvett heitu kaffi á fulltrúa ICE.

„Einstaklingurinn … var borinn kennsl á sem Sofia Hernandez Mejia, ólöglegur innflytjandi frá Mexíkó sem dvaldi lengur en vegabréfsáritun hennar heimilaði. Hún var í kjölfarið einnig handtekin,“ skrifaði ICE á X.

Fulltrúar ICE að störfum.

Fulltrúar ICE að störfum. AFP/Charly Triballeau

„Við erum ævareið“

Alaska Airlines, sem annaðist flugið þar sem Mendoza og Mejia reyndu að fara um borð, sagðist á laugardag hafa „áhyggjur af aðgerð löggæsluyfirvalda í morgun“.

„Alaska Airlines ber að fara að gildandi lögum og reglum í samskiptum við löggæsluyfirvöld“ en „stýrir hvorki né samhæfir aðgerðir í innflytjendaeftirliti“, bætti fyrirtækið við.

Hafnaryfirvöld í Seattle, sem reka flugvöllinn, sögðu: „Við erum ævareið vegna atviksins í morgun þar sem ICE og tveir farþegar áttu í hlut.“

Mótmælandi í New York.

Mótmælandi í New York. AFP/Kena Betancur

Í þessum mánuði skipaði Trump Stephen Miller, hugmyndasmið harðlínustefnu sinnar í innflytjendamálum, sem nýjan starfsmannastjóra sinn.

Miller sætti víðtækri gagnrýni eftir að innflytjendafulltrúar skutu tvo mótmælendur til bana í Minneapolis í janúar og urðu mikil mótmæli í kjölfarið.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab