Lögreglan í útkall vegna tölvuleiks

Stundum er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það ákvað einhver að gera nú um helgina og hringdi í lögreglu til að tilkynna um hávaða.

Þegar lögreglu bar að garði reyndist ekkert saknæmt á ferðinni. Þarna höfðu aðilar misst sig í tölvuleiknum Among Us og hiti færst í leikinn. Um er að ræða tölvuleik í anda vinsælu blekkingaleikjanna Varúlfur og Mafía. Þar keppast leikmenn við að finna vísbendingar til að finna út hver á meðal þeirra er svikari. Stundum getur fólki sárnað í leikjunum ef því þykir saklaust vænt um að vera svikari eða ef svikarinn beitir brögðum til að leynast.

Óveðrið gerði einnig vart við sig og lögreglu barst tilkynning um bárujárnsplötur sem voru farnar af stað vegna veðurs og einnig var tilkynnt um foktjón.

Að öðru leyti er einkum fjallað um brot ökumanna í dagbók lögreglu, en nokkrir voru teknir við akstur án ökuréttinda eða undir áhrifum vímugjafa í nótt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab