„Óviðeigandi“ æfingar hjá suðurkóreska hernum vekja upp ramakvein

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 09:30

Óvíða er gæslan meiri en á landamærum Kóreuríkjanna. Mynd:Getty

Suðurkóreski herinn hefur viðurkennt að æfingaprógramm fyrir sérsveitir hans hafi verið óviðeigandi. Þetta viðurkenndi herinn eftir að myndir af æfingaraðferðunum voru birtar opinberlega.

Þessi óviðeigandi æfing gekk út á að fyrirsætur voru fengnar til að kenna hermönnum, karlkyns, hvernig á að ganga eins og þær gera á tískusýningum og stilla sér upp eins og þær gera.

Þetta gerðist í lok október á sérstakri hátíð sem fór fram í herstöð sérsveita hersins.

The Independent segir að TV Chosun sjónvarpsstöðin hafi fengið upptökur af þessu frá manni sem var áður í sérsveitunum. Á þeim sjást fyrirsæturnar íklæddar felubúningum og í háhæluðum skóm sýna sérsveitarmönnum hvernig á að bera sig að á tískusýningum.

Hermennirnir hermdu síðan eftir hreyfingum þeirra, meðal annars hinu undarlega göngulagi eins og fyrirsætur nota á tískusýningum. Að lokum skiptust þeir á að ganga og stilla sér upp fyrir framan fyrirsæturnar.

Eftir birtinguna vöknuðu spurningar hjá mörgum af hverju sérsveitarmenn, sem takast á við allra hættulegustu verkefni hersins, væru að læra af fyrirsætum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab