Hrefna segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist sér - Miklar kvalir eftir meðferð á Landspítalanum – „Ég hef ekki viljað lifa lengur“
Hrefna Thomsen Árnadóttir er tveggja barna móðir á fertugsaldri. Hún ætti því ef allt væri eðlilegt að vera í blóma lífsins en svo er í raun ekki. Hrefna hefur glímt stóran hluta lífsins við bandvefssjúkdóm sem hefur reynst henni vægast sagt erfiður. Sjúkdómurinn hefur meðal annars áhrif á liðbönd og valdið því að axlir Hrefnu hafa getað farið mun auðveldlegar úr lið en hjá flestum öðrum. Hefur þetta ítrekað gerst hjá Hrefnu en önnur öxlin fór síðast úr lið í september síðastliðnum og hefur að hennar sögn verið þannig síðan. Hrefna segir að 20. október hafi verið gerð tilraun á Landspítalanum til að meðhöndla öxlina og koma henni í lið en það hafi endað með því að allur handleggurinn fyrir utan hluta fingranna sé lamaður og öxlin sé enn úr lið, með tilheyrandi sársauka. Hún segir að síðan þá hafi ekkert verið gert fyrir hana á spítalanum, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og þá ekki síst frá heimilislækni hennar.
Hrefna segir ástandið hafa haft ekki bara mjög skaðleg áhrif á líkamlega líðan sína heldur ekki síður hennar andlegu heilsu en hún hefur íhugað að taka eigið líf vegna hins mikla sársauka sem hún hefur þurft að lifa við síðustu vikur. Hún á erfitt með daglegar athafnir og ástandið hefur jafnframt reynt mjög á hennar nánustu sem finnst afar erfitt að horfa upp á hana glíma við slíka líkamlega og andlega vanlíðan en geta lítið gert til að lina þjáningar hennar. Segir Hrefna það í skoðun að hún leiti sér lögfræðiaðstoðar og kallar eftir því að eitthvað verði gert í heilbrigðiskerfinu til að koma henni til hjálpar.
EDS
Hrefna ræddi við fréttamann DV ásamt föður sínum Árna Gunnarssyni en hann og móðir Hrefnu, Kristín S. Ástþórsdóttir, hafa stutt dyggilega við bakið á dóttur sinni.
Árni Gunnarsson faðir Hrefnu hefur ásamt Kristínu móður hennar stutt dyggilega við bakið á dóttur sinni. Mynd: Aðsend.
Hrefna glímir við bandvefssjúkdóm sem á ensku heitir Ehlers-Danlos Syndrome (EDS) og er raunar skilgreindur sem heilkenni sem samanstendur af hópi sjaldgæfra arfgengra sjúkdóma sem einkennist af teygjanlegum bandvef og leggjast þeir á liðbönd, húð, innri líffæri, brjósk og æðar. EDS veldur galla á framleiðslu kollagens en það er prótein sem veitir bandvefjum líkamans ákveðinn teygjanleika og styrk. Þetta hefur þær afleiðingar að bandvefir líkamans verða óeðlilega veikir, gefa eftir og geta auðveldlega rifnað. EDS skiptist í 13 undirflokka sem á hver sín sérkenni en allir einkennast þeir af minnkuðum styrk og heilleika húðar, liða, æða og annarra vefja.
Í tilfelli Hrefnu hefur EDS eins og áður segir ekki síst haft áhrif á liðböndin með þessum áhrifum á axlarliðina.
Hrefna ásamt móður sinni Kristínu S. Ástþórsdóttur (t.v.). Mynd: Aðsend.
Hrefna segir að hún hafi farið í meðhöndlun á Landspítalanum þann 20. október síðastliðinn og á þeim tímapunkti hafi önnur öxl hennar verið úr lið í einn mánuð. Eftir þá meðhöndlun hafi hins vegar handleggurinn nánast allur lamast. Blaðamanni leikur þá strax forvitni á að vita hvers vegna ekki hafi verið reynt að koma öxlinni aftur í liðinn sem allra fyrst:
„Vegna þess að ég fæ ekki þá þjónustu sem aðrir fá.“
Sökuð um að leika sér að því að fara úr lið
Segir Hrefna að hún hafi verið sökuð á Landspítalanum um að „leika sér“ að því að nýta sjúkdóminn til að fara viljandi úr axlarlið. Telja hún og Árni líklegt að litið sé svo á að Hrefna sé að gera þetta til að sækjast eftir lyfjum. Þau vísa því alfarið á bug að Hrefna sé að haga sér með þessum hætti og segja að hún sé sannarlega ekki að gera sjálfri sér þetta viljandi til þess að fá ávísað lyfjum.
Hrefna segir að heimilislæknir hennar hafi fundað með bæklunarlæknum á Landspítalanum:
„Þá vildu þeir einmitt meina það að ég væri alltaf að streitast á móti til þess að fá lyf.“
Heimilislæknirinn hafi hins vegar á fundinum lagt fram nokkurt magn gagna sem hafi sýnt fram á að Hrefna hafi verið svæfð þegar reynt hafi verið að koma henni í axlarlið á Landspítalanum, án árangurs og því stæðist það ekki að hún hafi reynt að streitast á móti tilraunum til að koma öxlinni í lið. Eftir það hafi fátt verið um svör af hálfu bæklunarlæknanna á fundinum.
Hrefna segir að þegar hin misheppnaða tilraun hafi verið gerð á Landspítalanum þann 20. október síðastliðinn til að koma öxlinni í liðinn hafi hún undirgengist svokallaða slævingu sem eftir því sem DV kemst næst er deyfing, sljóvgun eða vægt afbrigði af svæfingu. Hún segir að við slævinguna hafi verið notað lyfið propofol sem mun vera notað bæði sem svæfingar- og deyfilyf. Hrefna segir að enginn svæfingalæknir eða svæfingahjúkrunarfræðingur hafi verið viðstaddur og þeir læknar sem sáu um slævinguna hafi ekki verið með það á hreinu hvað það ætti að gefa henni mikið magn af lyfinu. Henni hafi verið sagt:
„Við byrjum bara á einhverju og bætum síðan við.“
Hrefna á ferðalagi þegar staðan var betri. Mynd: Aðsend.
Ekkert
Eftir slævinguna hafi hún síðan vaknað með öxlina enn úr lið og þar að auki með handlegginn lamaðan fyrir utan tvo fingur. Segist Hrefna hafa fengið þær upplýsingar frá yfirlækni að bæklunarlæknar sem hafi reynt að koma öxlinni í liðinn hafi gert það með röngum hætti.
Síðan er liðinn mánuður og þegar fréttamaður spyr Hrefnu hvað hafi gerst síðan þá er svarið skýrt og skorinort:
„Ekkert.“
Hrefna segist hafa hitt bæklunarlækni hjá Klíníkinni sem hafi ætlað að vísa hennar máli til sjúkraþjálfara sem sé sérhæfður í meiðslum og öðru sem viðkemur öxlum en hún hafi ekkert heyrt neitt meira af því. Árni bætir við að í raun sé eina svarið sem borist hafi það að tilvísun sé komin til skila og það verði haft samband.
Hrefna ítrekar að hún hafi ekki fengið litla eða laka þjónustu hjá bókstaflega öllu heilbrigðiskerfinu en heimilislæknir hennar hafi reynst henni mjög vel. Sá læknir hafi sent tilvísun í Orkuhúsið svo að Hrefna gæti hitt þar lækni sem gert hafi fyrir um 20 árum aðgerðir á báðum öxlum hennar en þar sé sama svarið, tilvísun sé móttekin og haft verði samband síðar. Hins vegar hafi hún fengið slík svör áður en síðan hafi aldrei verið haft samband.
Miðað við lýsingar Hrefnu fær hún litla hjálp í kerfinu að heimilislækninum frátöldum og ljóst virðist að sá læknir getur ekki meðhöndlað hana að fullu einn síns liðs.
Sársaukinn
Fréttamaður spyr Hrefnu næst að því hvort þetta ástand á öxlinni sem varað hefur nú í tvo mánuði sé ekki sársaukafullt og hún fer ekkert í grafgötur með það:
„Þetta er það sársaukafullt að það hefur þurft að kalla til prest vegna þess að ég hef ekki viljað lifa lengur.“
Það er fréttamanni augljóst að það fær töluvert á Hrefnu að greina frá þessu og rödd hennar virðist við það að bresta en hún nær að halda áfram:
„Ég er tveggja barna móðir og sársaukinn er samt það mikill að ég hef íhugað að taka mitt eigið líf.“
Hrefna segir að umræddur prestur hafi reynst henni afar vel og hún megi hafa samband við hann hvenær sem er sólarhringsins. Það sé henni ómetanlegt að þurfa ekki að bíða eftir tíma hjá sálfræðingi til að fá aðstoð vegna þeirra slæmu áhrifa sem hennar líkamlega heilsa hefur haft á þá andlegu.
Lög
Miðað við lýsingar Hrefnu virðist tilefni til að leggja fram kæru eða kvörtun vegna þeirrar meðhöndlunar sem hún hefur fengið.
Aðspurð hvort eitthvað slíkt hafi verið gert eða sé í farvatninu svarar Hrefna því til að hún hafi reynt að ná sambandi við talsmann sjúklinga á Landspítalanum en án árangurs. Hún hafi þó ekki reynt það vegna þessa máls, það er að segja þeirrar meðhöndlunar sem hún hlaut á spítalanum 20. október síðastliðinn. Í ljósi fyrri árangurslausra tilrauna til að ná sambandi við talsmanninn hafi hún í þetta sinn ekki talið þjóna neinum tilgangi að reyna það:
„Næsta skref hjá mér það er bara að fá mér lögfræðing,“ segir Hrefna og bætir við að það sé í skoðun.
Hrefna hefur ekki getað hreyft hægri öxlina og handlegginn með þessum hætti í margar vikur. Mynd: Aðsend.
Hugsanlega er sá möguleiki fyrir hendi að sækja um bætur úr sjúklingatryggingu hjá Sjúkratryggingum Íslands en ljóst er að slíkt ferli tekur yfirleitt að lágmarki 1-2 ár.
Aðspurð um hvort hún hafi lagt fram kvörtun til stjórnenda spítalans segir Hrefna svo ekki vera. Hún hafi hugleitt það en hún eigi hins vegar nóg með það að komast í gegnum sitt daglega líf. Hrefna og fjölskylda hafa einnig rætt þann möguleika að leggja fram kvörtun við embætti landlæknis.
Hjálp
Þegar fréttamaður spyr hvað Hrefna vilji sjá að gert verði fyrir hana í heilbrigðiskerfinu grípur Árni boltann á lofti:
„Koma henni í axlarlið.“
Árni nefnir einnig lömunina í handleggnum og þau feðgin eru sammála um að því lengur sem hún vari því meiri líkur hljóti að vera á varanlegum skaða. Hrefna segist hafa fengið þau svör frá læknum á Landspítalanum að það verði eftir 2 ár hægt að meta hversu mikill skaði hafi orðið á handleggnum og hvort hann sé varanlegur.
Ítrekað
Eins og áður kom fram hefur Hrefna í gegnum árin ítrekað farið úr axlarlið vegna EDS-sjúkdómsins og þau feðgin segja það jafnframt gerast ítrekað að hún fái litla sem enga þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Henni hefur þó á endanum yfirleitt verið komið aftur í axlarlið þangað til í þessu nýjasta tilfelli.
Árni nefnir að dæmi sé um að Hrefnu hafi beinlínis verið vísað út af Landspítalanum og bókstaflega verið sagt við hana að henni yrði ekki komið aftur í lið. Sömuleiðis hafi henni verið sagt að sjá um það sjálf að koma öxlinni aftur í liðinn.
Þau feðgin segja að vegna lömunarinnar í þessu nýjasta tilfelli hafi verið beðið um forgang en það hafi ekkert haft að segja. Hrefna nefnir einnig að það sé alls ekki æskilegt að axlir séu lengi úr lið. Það hafi skaðleg áhrif á axlarvöðana og því lengur sem það vari því erfiðara verði að koma öxlinni aftur í liðinn. Þau feðgin telja ljóst að Hrefna þurfi á skurðaðgerð að halda til að koma öxlinni aftur í lið. Hrefna segir að henni hafi raunar verið tjáð 20. október á Landspítalanum, eftir umrædda tilraun til að koma öxlinni í liðinn, að hún yrði send í aðgerð og verið sagt að fasta en eftir fimm daga föstu hafi henni verið tjáð að ekkert yrði af aðgerðinni og skýringin hafi verið:
„Við ætlum ekki að gera þetta.“
Hrefna og Árni segjast velta fyrir sér hvers vegna sé ekki hægt að gera það sama við þá öxl sem er úr lið og gert hafi verið við hina öxlina. Í þeirri öxl hafi verið komið fyrir svokölluðu axlarakkeri en það er notað til að festa bandvef við bein í öxl. Í betri öxlinni séu einnig títanplötur og naglar:
„Við fáum ekki svör við því af hverju er ekki hægt að gera það hægra megin eins og vinstra megin,“ segir Hrefna.
Hún hafi ekki fundið nein óþægindi frá vinstri öxlinni síðan öllu þessu var komið þar fyrir.
Árni og Hrefna segja að tíðar ferðir á Landspítalann séu farnar að taka sinn toll og ástandið þá tvo mánuði sem öxlin hefur verið úr lið hafi haft í för með sér töluverðan lyfja- og lækniskostnað, yfir 100.000 krónur, og lyfin sem hún þurfi á að halda vegna ástandsins séu ekki niðurgreidd.
Langur tími
Í ljósi þess að vikið hefur verið að því sem gert hefur verið áður en þetta nýjasta tilfelli kom upp spyr fréttamaður hversu lengi Hrefna hafi lifað með EDS og hvenær hún hafi verið greind fyrst með sjúkdóminn.
Hrefna telur það hafa verið þegar hún var um tvítugt. Hún hafi fyrst farið að finna fyrir einkennum þegar hún var 13 ára og þá fyrst farið úr axlarlið, en greiningin hafi tekið allan þennan tíma m.a. vegna takmarkaðrar þekkingar lækna hérlendis á sjúkdómnum en minna ber á í þessu samhengi að EDS er sjaldgæfur sjúkdómur.
Lífið
Sjúkdómurinn og þetta ástand sem varað hefur síðustu 2 mánuði gerir daglegt líf Hrefnu erfiðara en ella. Það sem flestir aðrir taka sem sjálfsögðu eins og t.d. að geta innt af hendi hefðbundin heimilisverk er henni mun erfiðara. Sumt eins og t.d. að keyra bíl er ómögulegt fyrir Hrefnu og vart þarf að taka fram að hún er óvinnufær. Ástand síðustu tveggja mánaða hefur síðan gert Hrefnu enn erfiðara fyrir en til að mynda var hún áður virk í hestamennsku en hefur ekkert getað stundað hana vegna handleggsins og axlarinnar.
Hrefna hefur getað stundað hestamennsku en undanfarnar vikur hefur það verið vonlaust vegna ástandsins á hægri öxlinni og handleggnum. Mynd: Aðsend.
Aðspurð segist Hrefna ekki hafa verið með heimaþjónustu hjá sínu sveitarfélagi og ekki sótt um hana. Það sé oftast nægt verkefni að komast í gegnum daginn og hún hafi einfaldlega ekki hugsað út í þann möguleika. Hún hafi þó sótt um fyrir einhverjum árum síðan en það hafi ekki haft í för með sér nema takmarkaða þjónustu, minni en hún hafi raunverulega þurft á að halda. Hrefna segist hafa verið í einhverju sambandi við félagsráðgjafa hjá sveitarfélaginu og þau feðgin taka undir hugleiðingar fréttamanns um hvort það geti ekki verið tilefni til að kanna þann möguleika á nýjan leik, hvort hún geti fengið einhverja heimaþjónustu til að létta undir með sér.
Hrefna er eins og áður segir tveggja barna móðir. Börnin eru á grunnskólaaldri og það getur verið stundum verið erfitt fyrir Hrefnu, vegna þessa sjúkdóms síns og þess ástands sem verið hefur á öxlinni og handleggnum undanfarnar vikur að sinna móðurhlutverkinu. Hún nýtur dyggrar aðstoðar foreldra sinna og kærasta en hún og kærastinn, Atli Arnars Sigurðsson, búa þó ekki saman.
Atli og Hrefna á ánægjulegri tímum. Mynd: Aðsend.
Hrefna og Árni segja það hafa reynst börnunum erfitt að horfa upp á vanlíðan móður sinnar:
„Það er ótrúlega erfitt að þurfa oft að segja við börnin sín: nei mamma getur ekki gert þetta. Börnin mín hafa séð mig gjörsamlega búna á því, grátandi af sársauka. Þar sem þau taka utan um mömmu sína og segja: mamma, þetta verður allt í lagi.“
Vanmáttur
Ástandið hefur ekki síður fengið á foreldra Hrefnu og fréttamaður spyr Árna hvernig það sé að horfa upp á dóttur sína ganga í gegnum þetta allt saman:
„Þetta er bara alveg hryllilegt.“
Foreldrar Hrefnu gera allt sem þau geta til að aðstoða hana og Árni segir að staða hennar hafi þó nokkur áhrif á þeirra líf. Hann og Kristín, móðir Hrefnu, eru bæði komin á eftirlaun og eiga sér dvalarstað erlendis en hafa vegna ástandsins þurft þó nokkrum sinnum að hætta við að fara þangað.
Árni játar því aðspurður að þau foreldrarnir hafi miklar áhyggjur af Hrefnu og hennar heilsu.
Hrefna bætir því við að við svona aðstæður finni þau öll í fjölskyldunni til vanmáttar síns:
„Ég veit að þetta hefur haldið vöku fyrir foreldrum mínum.“
Árni tekur undir það að finna fyrir vanmætti:
„Hún kemur á svo mörgum stöðum að lokuðum dyrum. Við getum ekkert gert. Við getum ekki farið og opnað. Þetta getur stundum tekið svolítið á,“ segir Árni og það blasir við að þessi erfiðu veikindi og staða sem dóttir hans hefur þurft að takast á við hafa fengið töluvert á hann:
„Þetta er mjög sárt að horfa upp á þetta.“
Hrefna bætir því að Atli finni einnig mjög fyrir vanmætti og langi mikið til að geta gert meira til að lina þann mikla sársauka sem hún lifi með á hverjum degi
Hrefna og Atli í ökuferð. Mynd: Aðsend.
Þau sem henni næst standa langi öll mikið til að þau gætu gert eitthvað til að taka sársaukann í burtu svo að hin líkamlega og andlega líðan hennar batni en þau einfaldlega geti það ekki.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗