Hvers vegna mætti Aron ekki í viðtal?
Kristján Óli Sigurðsson sagði í hlaðvarpinu Þungavigtinni að Aron Einar Gunnarsson hefði ekki viljað fara í viðtal hjá Sýn eftir síðasta landsleik sinn í fótbolta vegna fyrri skrifa fréttamannsins sem tók viðtölin.
Aron Einar ræddi ekki við Val Pál Eiríksson í beinni útsendingu eftir leik Íslands og Lúxemborgar á dögunum.
„Ástæðan var að hann vildi ekki tala við þann sem var að taka viðtölin á Sýn. Menn sem eru búnir að skrifa um einhver mál í fortíðinni eru kannski ekki réttu mennirnir til að taka viðtal við hann eftir landsleiki,“ sagði Kristján Óli.
Aron Einar hafði áður greint frá því á Instagram að hann hefði haft sínar ástæður fyrir því að fara ekki í viðtal strax eftir leikinn. Það gerði hann eftir að því var velt upp í þætti á Fótbolta.net hvort KSÍ hefði ekki viljað að hann færi í viðtal.
Leikurinn gegn Lúxemborg var síðasti landsleikur Arons Einars og jafnaði hann leikjamet Birkis Bjarnasonar. Hann var fyrirliði Íslands þegar liðið komst í lokakeppni EM 2016 og HM 2018.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗