Frá ábrystum til Jörth

Rannsóknir Birnu G. Ásbjörnsdóttur á meltingarveginum móta enn hvernig hún setur vörur Jörth saman. Ljósmynd/Aðsend

Birna G. Ásbjörnsdóttir og eiginmaður hennar, Guðmundur Ármann Pétursson, stofnuðu fyrirtækið Jörth eftir að hafa velt fyrir sér hvernig mætti nýta broddmjólk sem annars færi til spillis. Fyrirtækið býður í dag upp á fimm tegundir fæðubótarefna og sumir viðskiptavinir hafa verið með þeim frá upphafi.

Þá hafa sumir viðskiptavinir Jörth verið í áskrift að vörunum í meira en þrjú ár og segir Birna að mun fleiri en hún átti von á séu áskrifendur að allri línunni. Henni þykir vænt um hversu óhikað fólk hefur samband til að lýsa yfir ánægju með vörurnar eða jafnvel bara til að láta vita ef það tekur eftir einhverju í verslun sem betur mætti fara.

„Ég er alveg snortin yfir því hvað fólk er tryggt. Það hefur myndast mjög fallegt samfélag í kringum Jörth. Við reynum að hlúa að okkar fólki og það hlúir líka að okkur,“ segir Birna.

Hjá Jörth er broddmjólkin gerjuð og frostþurrkuð áður en hún er sett í hylki. Fyrirtækið nýtir einnig þurrgerjað íslenskt mysuprótín úr mjólkurvinnslu og örhjúpaða góðgerla. Ljósmynd/Aðsend

Broddmjólkin sem kálfarnir drukku ekki

Þegar Birna var að alast upp gaf mamma hennar henni ábrystir. Birnu þótti ábrystirinn góður og á heimilinu var vani að nýta broddmjólkina, fyrstu mjólkina sem kýrin gefur eftir burð.

Árum síðar, þegar Birna var í doktorsnámi í heilbrigðisvísindum, fóru þau Guðmundur Ármann að velta fyrir sér hvað yrði um broddmjólkina sem kálfarnir drykkju ekki.

„Við vorum bæði mikið áhugafólk um broddmjólk og komumst að því að miklu af umframmagni broddmjólkur var fargað. Okkur þótti það miður. Ég ákvað að skoða broddmjólkina nánar og hún varð hluti af doktorsverkefninu mínu,“ segir Birna.

Úr þeirri vinnu varð til fyrsta vara Jörth. Rannsóknir Birnu á meltingarveginum móta enn hvernig hún setur vörurnar saman. Og hjá Jörth hefur verið leitað leiða til að nýta íslensk hráefni sem annars kynnu að fara til spillis.

Hugsunin um betri nýtingu nær líka til umbúðanna. Hylkin fást í glerglösum sem eru ætluð til endurnotkunar. Þegar glasið tæmist er hægt að kaupa áfyllingu og nota það áfram.

Birna G. Ásbjörnsdóttir og eiginmaður hennar, Guðmundur Ármann Pétursson, stofnuðu fyrirtækið Jörth eftir að hafa velt fyrir sér hvernig mætti nýta broddmjólk sem annars færi til spillis. Ljósmynd/Aðsend

Það sem gerist í þörmunum

Áhuginn á heilsu kviknaði hjá Birnu á unglingsárunum þegar hún las sér til um jógaheimspeki og ýmis austurlensk fræði. Þar rakst hún öðru hvoru á umfjöllun um broddmjólk og fór að velta fyrir sér hlutverki hráefnisins sem hún þekkti úr sveitinni.

„Mér fannst þetta svo rökrétt. Broddmjólkin er fyrsta fæðan sem spendýr fá og það er einhver ástæða fyrir því. Mig langaði að skoða hvað hún inniheldur og hvernig hún virkar,“ segir Birna.

Í doktorsnámi sínu rannsakaði Birna geðheilsu barna og unglinga með hliðsjón af meltingarveginum og skoðaði meðal annars broddmjólk í tengslum við þarmaflóruna og slímhúð þarmanna. Hún fylgist enn af áhuga með því hvernig rannsóknir á þarmaflórunni hafa þróast.

„Við erum farin að skoða meira hvað örverurnar í þörmunum eru að gera, hvernig þær hafa samskipti sín á milli og hvernig þær hafa samskipti við líkamann. Svo bregst hver og einn ólíkt við. Mér finnst áhugavert að fylgjast með því hvernig þetta er í auknum mæli skoðað út frá einstaklingnum.“

Rannsóknir Birnu á meltingarveginum móta enn hvernig hún setur vörurnar saman. Og hjá Jörth hefur verið leitað leiða til að nýta íslensk hráefni sem annars kynnu að fara til spillis. Ljósmynd/Aðsend

Rannsóknir hér heima og erlendis

Birna lauk doktorsprófi í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands og hafði áður lokið meistaranámi í næringarlæknisfræði við University of Surrey.

Auk rannsókna sinna hér á landi hefur hún tekið þátt í rannsóknum við Massachusetts General Hospital og Harvard Medical School. Þar hefur meðal annars verið skoðað hvernig þarmaflóran, ónæmiskerfið og taugakerfið hafa áhrif hvert á annað.

Formúlur Jörth hafa einnig verið viðfangsefni rannsókna. Birna hefur tekið þátt í íhlutunarrannsóknum þar sem skoðuð hafa verið áhrif gerjaðra matvæla og formúla fyrirtækisins á þarmaflóru og heilsufarsþætti hjá fullorðnum.

Hægt er að gerast áskrifandi af vörum hjá Jörth og margir nýta sér það. Töluverður fjöldi er líka áskrifandi að allri vörulínu Jörth. Ljósmynd/Aðsend

Fimm formúlur með ólíka áherslu

Hjá Jörth er broddmjólkin gerjuð og frostþurrkuð áður en hún er sett í hylki. Fyrirtækið nýtir einnig þurrgerjað íslenskt mysuprótín úr mjólkurvinnslu og örhjúpaða góðgerla. Birna segir hjúpinn eiga að verja gerlana á leiðinni niður í þarmana.

„Vöruþróunin byggir á skilningi á líkamanum. Ég horfi á hvernig líffræðileg kerfi starfa og hvernig þau hafa áhrif hvert á annað. Þannig hugsa ég formúlurnar. Ein er hugsuð út frá meltingarveginum, önnur út frá ónæmiskerfinu og önnur út frá samskiptum þarma og heila. Svo erum við með formúlur sem eru hugsaðar út frá svefni og einbeitingu,“ segir Birna.

Vörumerkið Jörth kjarnar vel áherslur stofnendanna á gæði, hreinleika, umhverfismál og náttúrulega fágun. Ljósmynd/Aðsend

Aðspurð um uppáhaldsvöruna segir hún það svolítið eins og að velja á milli barnanna sinna. Hún velur þó Immun, þar sem broddmjólkin er uppistaðan og við hana bætast ónæmisþættir úr eggjum. Að sögn Birnu innihalda bæði broddmjólk og egg vel rannsökuð lífvirk efni sem hafa fjölþætta eiginleika og gegna hlutverki í náttúrulegum vörnum líkamans.

„Það sem heillaði mig sérstaklega við þróun Immun var að sameina þessi ólíku efni í eina formúlu. Þau hafa hvort sína sérstöðu og saman mynda þau einstaka samsetningu sem byggir á fjölþættri líffræðilegri virkni þeirra.“

Þá segir hún að nafnið á vörunum eigi sér líka sína sögu. „Jörth er forn-íslenska og þýðir einfaldlega jörð. Jörth er í okkar huga traustvekjandi og fallegt íslenskt nafn sem við tengjum sterkt við.

Vörumerkið Jörth kjarnar vel áherslur okkar á gæði, hreinleika, umhverfismál og náttúrulega fágun,“ segir Birna að lokum.

Í Immun er broddmjólk uppistaðan og við hana bætast ónæmisþættir úr eggjum. Broddmjólk og egg innihalda bæði vel rannsökuð lífvirk efni sem hafa fjölþætta eiginleika og gegna hlutverki í náttúrulegum vörnum líkamans. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab