Russell Brand fyllti Eldborg
Russell Brand sendi nýlega frá sér yfirlýsingu úr fangelsinu sem eiginkona hans flutti. Hann situr inni fyrir nauðgun og kynferðisbrot í Bretlandi. AFP/Henry Nicholls
Russell Brand, einn þekktasti skemmtikraftur Bretlands, situr í fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur 5. nóvember fyrir eina nauðgun og þrjár kynferðislegar árásir gegn fjórum konum. Hann var dæmdur 9. nóvember í tíu ára og sex mánaða fangelsi. Brotin áttu sér stað á árunum 2004-2009. Brand neitaði sök í öllum ákæruliðum.
En hver er maðurinn sem fór úr því að vera einn þekktasti skemmtikraftur Bretlands yfir í að verða dæmdur kynferðisbrotamaður?
Villt ímynd og frægð
Brand varð frægur á fyrsta áratug aldarinnar sem ögrandi skemmtikraftur sem talaði opinskátt um kynlífsfíkn, fíkniefnaneyslu og óhefðbundinn lífsstíl. Hann skapaði sér ímynd villtrar rokkstjörnu; var ófeiminn, orðheppinn, sjálfumglaður og fór gjarnan yfir öll siðferðisleg mörk í gríni sínu sem var oft gróft og kynferðislegt.
Vinsældir hans jukust hratt í Bretlandi en Brand starfaði þá sem uppistandari og sjónvarpsmaður. Hann náði síðar alþjóðlegri frægð sem leikari í kvikmyndum þegar hann lék í Forgetting Sarah Marshall (2008) og Get Him to the Greek (2010), auk annarra kvikmynda og sjónvarpsþátta.
Brand giftist Lauru Gallacher árið 2017 og eiga þau þrjú börn saman. Árið 2024 greindi Brand frá því að hann hefði tekið kristna trú og lét skírast í Thames-ánni. Brand sást við nokkur tækifæri með Biblíu í hendi þegar hann mætti fyrir dóm. Athygli hefur vakið að hann fór fyrst að tala opinberlega um kristna trú sína eftir að ásakanirnar komu fram árið 2023.
Fyllti Hörpu árið 2013
Í desember árið 2013 kom Brand til Íslands, þá á hátindi vinsælda sinna sem grínisti, leikari og samfélagsrýnir. Um þetta leyti var hann talinn róttækur vinstrisinni. Tíu árum síðar var hann af mörgum talinn hluti af hreyfingu sem sótti stóran hluta áheyrenda sinna til hægri.
Þegar hann kom til Íslands var hann að ljúka heimstúr sínum, Messiah Complex, og var Reykjavík síðasti áfangastaðurinn. Brand fyllti Eldborgarsal Hörpu í tvígang, sem segir sitt um vinsældir hans.
Sunnudagsblað Morgunblaðsins birti við hann forsíðuviðtal í júlí sama ár. Þar stendur meðal annars:
Brand er frægur og lifir í heimi frægra. Mörgum gæti þótt hann einmitt hafa staðið fyrir þetta sem hann lýsir. Á kafi í rugli og tilgangsleysi.
„Ég hef breyst síðustu árin. Ég reyni að hafa það efst í huga að særa ekki fólk, verja þá sem geta ekki varið sig í þessu lífi, vera sannur og trúr. Ég hef unnið með eigin galla. Áður var það eina sem komst að hjá mér að lifa af og stunda kynlíf.“
Brand talar um hrifningu sína á Íslendingum og ræðir um fegurð íslenskra kvenna og kallar blaðamanninn „love“.
„Þið stóðuð í fæturna gagnvart spilltu bankakerfi. Íslendingar eru fólk sem ég hef áhuga á. Að auki eru konurnar ákaflega, ákaflega fallegar.“
Síðar í viðtalinu segir:
Brand verður tíðrætt um fegurð, sér í lagi kvenna. Konur falla líka fyrir honum í hrönnum. Hann er einn helsti hjartaknúsari heims. Hvernig fer hann að þessu? Hann vill ekki meina að hann geri neitt nema láta fólki líða vel með sig.
„Ég reyni bara að láta fólk finna og skilja að það er fallegt, mjög fallegt, og það þurfi ekkert frekar til að gera sig fegurra.“
Orðin hljóma öðruvísi í dag, þegar litið er til frásagna kvennanna sem síðar stigu fram.
Sendi skilaboð úr fangelsinu
Mánudaginn 16. nóvember birtist frétt í The Guardian um skilaboð sem Brand kom á framfæri úr fangelsinu, en hann lét eiginkonu sína lesa upp yfirlýsingu frá sér í myndbandi á YouTube. Þar lýsir hann meðal annars yfir sakleysi sínu, gefur í skyn að samsæri sé gegn honum og endar með trúarlegum boðskap um fyrirgefningu, kærleika og bæn. Breska dómsmálaráðuneytið hefur hafið rannsókn á því hvort Brand hafi brotið fangelsisreglur með því að láta birta skilaboð sín í gegnum eiginkonuna.
Ekki er enn búið að komast að niðurstöðu um brot, en reglur banna föngum að koma yfirlýsingum á framfæri í fjölmiðlum nema við sérstakar aðstæður. Reglurnar banna einnig að fangi noti annan einstakling til að koma skilaboðum á framfæri sem hann sjálfur mætti ekki birta. Ed Miliband utanríkisráðherra Bretlands var mjög harðorður í viðtali við Sky News og sagði skilaboðin viðbjóðsleg, til marks um enga iðrun og bera vott um að engin sé samúðin með fórnarlömbunum.
Ítarlega er fjallað um málið í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
