Slökkvistarf stendur enn yfir í Finnlandsflóa
Erlent | mbl | 22.11.2026 | 8:58
Slökkvistarf stendur enn yfir vegna elds um borð í rússnesku flutningaskipi eftir drónaárás í Finnlandsflóa í gær.
Finnska landamæragæslan greindi frá þessu, að því er finnska ríkisútvarpið Yle greindi frá.
Finnski herinn telur líklegt að Úkraína hafi staðið á bak við árásina en Úkraínumenn hafa ekki lýst ábyrgðinni á hendur sér.
Rússneskar og eistneskar björgunarsveitir taka einnig þátt í slökkvi- og kælingarstarfinu undir stjórn landamæragæslunnar.
Varðskipið Uisko samhæfir aðgerðir á vettvangi.
Að sögn landamæragæslunnar þarf slökkvistarfið að miðast við að of mikið vatn safnist ekki fyrir í skipinu.
Ef það gerist getur skipið misst stöðugleika sinn og jafnvel sokkið.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗