Hvergi minnst á jarðefnaeldsneyti
Forsætisembætti COP31 lagði í morgun fram ný samningsdrög á elleftu stundu þar sem jarðefnaeldsneytis er enn á ný hvergi getið.
Nýjasta tillaga Tyrklands og Ástralíu, sem halda ráðstefnuna sameiginlega, var birt löngu á eftir áætlun. Hún skilur eftir óleystan ágreining um jarðefnaeldsneyti, sem veldur hlýnun jarðar, en heldur inni eftirsóttu markmiði um rafvæðingu hagkerfis heimsins.
Tillagan þarf að hljóta samhljóða samþykki nærri 200 ríkja á lokafundi síðar í dag, en þeim hefur gengið illa að brúa bilið í tveggja vikna þrotlausum samningaviðræðum.
Evrópusambandið og fleiri ríki hafa þrýst á um afdráttarlaust orðalag um að hverfa frá jarðefnaeldsneyti. Þessi krafa hefur mætt andstöðu olíuríkisins Sádi-Arabíu.
Embættismaður ESB sagði við AFP að nýjasta tillagan væri „skref aftur á bak“ og varaði við því að „raunveruleg hætta“ væri á að COP31 lyki án samkomulags.
„Ég er svartsýnni í dag en ég var í gær,“ sagði embættismaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið.
„Staðan er erfið og niðurstaðan óviss. Olíuframleiðsluríkin berjast af hörku,“ sagði þýskur embættismaður.
Sádi-arabískur embættismaður vildi ekki tjá sig þegar AFP leitaði til hans.
Jarðefnaeldsneyti er mikið hitamál í loftslagsviðræðunum og ráðstefnan fer fram við erfiðar aðstæður, þar sem orkuverð hefur rokið upp og spenna ríkir á alþjóðavísu vegna stríðsins í Íran.
Í drögum að samkomulagi sem voru kynnt á dögunum var kallað eftir hraðari útfösun jarðefnaeldsneytis, en í annarri og útvatnaðri útgáfu sem birt var á fimmtudag hafði öll umfjöllun um kol, olíu og gas verið felld brott.
Hótuðu að ganga út
Hótanir um að ganga af fundi urðu til þess að Tyrkland og Ástralía boðuðu í skyndi til fundar Evrópusambandsins og Sádi-Arabíu í von um að miðla málum.
Í nýjasta textanum er vísað til fyrra alþjóðlegs samkomulags frá 2023 um að heimurinn hverfi frá jarðefnaeldsneyti en það er þó ekki nefnt berum orðum.
Þá er þar enn að finna umdeilda áherslu á aukna kolefnisföngun og geymslu, sem er tækni sem jarðefnaeldsneytisiðnaðurinn er hliðhollur en hefur verið gagnrýnd fyrir að vera kostnaðarsöm og árangurslítil við að draga úr losun.
„Mjög vonsvikin“
„Við erum mjög vonsvikin með hvernig textinn lítur út,“ sagði Michael Joseph, umhverfisráðherra Antígva og Barbúda, við AFP eftir að hafa yfirgefið skrifstofur forsætisembættis COP31.
„Ég get ekki með góðri samvisku sagt að ég sé sáttur við að hann verði samþykktur“ í núverandi mynd, sagði Joseph og bætti við að drögin væru „nánast þögul“ um jarðefnaeldsneyti.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

