Fimm æðislegar kápur fyrir veturinn
Það verður hver íslensk kona að eiga góða kápu inni í skáp. Kápa er þess virði að fjárfesta í því maður klæðist henni meira og minna allan veturinn, stundum langt fram í apríl.
Þegar kápukaup eru gerð er mikilvægt að kápan sé fyrst og fremst úr ull. Yfirhafnir úr akrýl eða öðrum gerviefnum eru í raun algjör sóun á fjármunum því þó að verðmiðinn sé lægri þá verður flíkin nánast ónothæf innan nokkurra mánaða. Þú vilt versla kápu sem þú notar í mörg ár.
Annað sem akrýlkápa getur ekki gert er að halda á þér hita. Þetta er sérstaklega mikilvægt atriði því ef kápan er köld þá gætirðu annars sleppt henni.
Það sem allar kápurnar á listanum eiga sameiginlegt er að þær eru allar bundnar um mittið. Þær eru klæðilegar, beltið dregur fram mittið og skapar fallegar línur án þess að kápan verði of aðsniðin. Það besta við þessar kápur er að þær henta bæði inn í hversdaginn og þegar þarf að klæða sig upp á.
Hér eru nokkrar æðislegar kápur sem eru til í verslunum núna. Ekki láta verðmiðann fæla þig frá alveg strax því þetta eru góð og klassísk kaup sem endast þér næstu ár. Svo má alltaf biðja um fallega kápu í jólagjöf.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




