Missteig sig í beinni: Hún er forljót

Íþróttir | mbl | 22.11.2026 | 8:00

Aryna Sabalenka er ein besta tenniskona heims.

Aryna Sabalenka er ein besta tenniskona heims. AFP/Matthew Stockman

Franski sjónvarpslýsandinn Matthieu Solier hefur sætt gagnrýni eftir að hafa kallað tennisstjörnuna Arynu Sabalenku „forljóta“ í útsendingu beIN Sports frá WTA Finals-mótinu.

Solier hélt að slökkt væri á hljóðnemanum hans þegar hann lét ummælin falla á meðan Sabalenka birtist í kynningarmyndbandi í útsendingunni á sunnudag.

Ummælin urðu til þess að kallað var eftir brottrekstri hans á samfélagsmiðlum. Florent Huzot, ritstjórnarstjóri beIN Sports, fordæmdi ummælin í yfirlýsingu á X og sagði þau ekki endurspegla gildi sjónvarpsstöðvarinnar.

Ekki er ljóst hvort Solier verði beittur agaviðurlögum. Sabalenka hefur ekki brugðist opinberlega við.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab