Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Óþekkti þingmaðurinn
Pistlahöfundur man eftir ótal skiptum á liðnum árum og áratugum þar sem hún sat fyrir framan sjónvarp að fylgjast með kosningasjónvarpi vegna Alþingiskosninga. Þar voru birtar með reglulegu millibili myndir af þeim þingmönnum sem væru hugsanlega að falla af þingi. Skyndilega sá maður andlit sem maður hafði aldrei séð áður og nafn sem maður mundi ekki eftir að hafa heyrt. Viðbrögð manns voru alltaf þau sömu: Er þessi virkilega þingmaður, af hverju hef ég ekki vitað af honum?
Þetta voru einmitt viðbrögð pistlahöfundar við úrsögn Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn. Nú veit pistlahöfundur meira um Ingvar en áður, en samt eiginlega bara það eitt að hann er þingmaðurinn sem sagði sig úr Viðreisn til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Af einhverjum ástæðum fannst honum það eftirsóknarvert.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á ansi vondri leið undanfarin misseri. Hann er fyrir löngu hættur að vera flokkur allra stétta og eltir Miðflokkinn í hægri-harðlínuáherslum. Þar vill Ingvar greinilega vera. Hann hefur vonandi áttað sig á því að í Sjálfstæðisflokknum borgar sig alls ekki að gæla við hugmyndir um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í augum sjálfstæðismanna flokkast slíkt sem verulega ámælisverð hugrenningasynd.
Það þarf ekki djúpsálarfræðing til að lesa í huga þeirra fjölmörgu sjálfstæðismanna sem trúa á sinn flokk af nánast ofsafenginni staðfestu. Þeir trúa reyndar líka staðfastlega á mammon, en sú vanhugsaða trú er ekki til umræðu í þessum pistli, en væri örugglega ágætis efni í jólapistil.
Í augum þessara sjálfstæðismanna er maður sem gengur úr Sjálfstæðisflokknum og stekkur yfir í annan flokk aumur svikari. Það sama á við um þingmann sem stekkur úr öðrum flokki til að hlaupa í faðm Sjálfstæðisflokksins. Í huga tryggra sjálfstæðismanna verður sá þingmaður aldrei alvöru sjálfstæðismaður. Það er vissulega tekið við slíkum þingmanni, hann getur jafnvel fengið flennistóra ljósmynd birta af sér í fjölmiðlum með formanni Sjálfstæðisflokksins í þingflokksherberginu, en allt er það sjónarspil. Viðkomandi er notaður í auglýsingaskyni fyrir flokkinn í smá tíma, en enginn ætlar sér raunverulega að hlaða undir hann og aldrei mun hann í nýja flokknum geta þvegið af sér liðhlaupsstimpil.
Kannski verður framtíð Ingvars undantekning frá þessu. Kannski.
Viðreisn hefur á stuttum tíma misst tvo þingmenn. Jón Gnarr er reyndar ekki alveg tapaður því þótt hann sé utan þingflokksins er hann enn í Viðreisn og verður vonandi áfram því það eru verðmæti í honum, og eins og félagi Össur (Skarphéðinsson) hefur bent á þá þykir öllum vænt um hann. Kannski hefur Ingvar Þóroddsson alltaf verið frjálshyggjumaður í hjarta sínu og á því betur heima í Sjálfstæðisflokknum en í Viðreisn. Það breytir samt engu um það að forysta Viðreisnar hefði átt að passa betur upp á þessa þingmenn sína. Í því sambandi er freistandi að snúa aðeins út úr orðum Oscars Wilde og segja að það að missa einn þingmann sé óheppni en að missa tvo beri vott um kæruleysi.
„Hver hefði trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í þessu stjórnarsamstarfi?“ spurði Össur Skarphéðinsson nýlega í Facebook færslu. Ekki sá maður þá vendingu fyrir sér. Fram að þessu hefur verið almennt álit að Flokkur fólksins væri hinn veiki hlekkur. Nú hefur það skyndilega breyst. Formaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Miðflokksins reyna á allan hátt að nýta sér þá staðreynd að Viðreisn er laskaður flokkur og ríkisstjórnin hefur vissulega veikst, en sennilega einungis tímabundið. Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kvaka að von sé á því að fleiri stjórnarþingmenn segi skilið við meirihlutann á þingi. Slóttugir stjórnmálamenn sem þrá völd vita að það getur verið áhrifaríkt að kasta fram innistæðulausum fullyrðingum til að skapa óróa hjá andstæðingnum.
Valdagræðgi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks fer varla fram hjá nokkrum þeim sem áhuga hefur á stjórnmálum. Allt skal gert til að fella núverandi ríkisstjórn. Hugmyndin um ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks með hinum leiðitama og veikgeðja Framsóknarflokki hljómar ekki geðslega. Það er huggun fyrir þjóðina að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur enn góðan meirihluta á þingi og er ekki á förum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗