Fimm æðislegar kápur fyrir veturinn

Kápur frá Zöru, Filippu K og Lovechild.

Kápur frá Zöru, Filippu K og Lovechild. Samsett mynd

Það verður hver íslensk kona að eiga góða kápu inni í skáp. Kápa er þess virði að fjárfesta í því maður klæðist henni meira og minna allan veturinn, stundum langt fram í apríl.

Þegar kápukaup eru gerð er mikilvægt að kápan sé fyrst og fremst úr ull. Yfirhafnir úr akrýl eða öðrum gerviefnum eru í raun algjör sóun á fjármunum því þó að verðmiðinn sé lægri þá verður flíkin nánast ónothæf innan nokkurra mánaða. Þú vilt versla kápu sem þú notar í mörg ár.

Annað sem akrýlkápa getur ekki gert er að halda á þér hita. Þetta er sérstaklega mikilvægt atriði því ef kápan er köld þá gætirðu annars sleppt henni.

Það sem allar kápurnar á listanum eiga sameiginlegt er að þær eru allar bundnar um mittið. Þær eru klæðilegar, beltið dregur fram mittið og skapar fallegar línur án þess að kápan verði of aðsniðin. Það besta við þessar kápur er að þær henta bæði inn í hversdaginn og þegar þarf að klæða sig upp á.

Hér eru nokkrar æðislegar kápur sem eru til í verslunum núna. Ekki láta verðmiðann fæla þig frá alveg strax því þetta eru góð og klassísk kaup sem endast þér næstu ár. Svo má alltaf biðja um fallega kápu í jólagjöf.

Brún, síð ullarkápa frá Vittoria Bini, fæst í Hjá Hrafnhildi og kostar 114.980 kr.

Grá, bundin ullarkápa frá Filippu K, fæst í Mathildu og kostar 74.990 kr.

Svört, bundin ullarkápa frá Mango sem kostar 23.500 kr. samkvæmt vefsíðu Mango.

Ljós ullarkápa frá Zöru sem kostar 29.995 kr.

Ljós ullarkápa frá Zöru sem kostar 29.995 kr.

Dökkbrún ullarkápa frá Lovechild, fæst í FOU22 og kostar 79.900 kr.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅