Kínverjar hleypa útlendingi með út í geim

Pressan

Sunnudaginn 22. nóvember 2026 07:30

Kínverska Tiangong geimstöðin. Mynd:Wikimedia/Commons

Reiknað er með að pakistanskur geimfari muni fara með Shezhou 24 geimfarinu út í geim og verður það í fyrsta sinn sem Kínverjar hleypa útlendingi með út í geim. Reiknað er með að geimfarinn fari með í kínversku geimstöðina og fari síðan aftur til jarðar með Shezhou 23 geimfarinu.

Independent skýrir frá þessu og segir að kínverska ríkisfréttastofan Xinhua hafi fyrr á árinu skýrt frá því að tveir Pakistanar væru við æfingar með kínverskum geimförum og að ætlunin væri að annar þeirra fari í stutta geimferð.

Tvímenningarnir voru valdir til þátttöku í æfingunum eftir erfitt þriggja stiga ferli þar sem þeir þurftu að takast á við margvíslegar æfingar og fara í stífa kennslu í kínversku.

Kínverjar eru stórhuga hvað varðar geimferðir og stefna á að kínverskir geimfarar lendi á tunglinu 2030 til að koma á laggirnar bækistöð þar sem fólk og vélmenni munu hafast við. Bækistöðin á að vera tilbúin til notkunar 2035.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab