Bárujárnsplötur fóru af stað vegna óveðurs

Lögreglan að störfum.

Lögreglan að störfum. mbl.is/Ólafur Árdal

Lögreglunni sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ var tilkynnt um bárujárnsplötur sem voru farnar af stað vegna óveðurs.

Einnig var lögreglunni sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti tilkynnt um foktjón vegna veðurs.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Fjársvik og grunsamlegar mannaferðir

Einstaklingur var handtekinn af lögreglunni sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ grunaður um fjársvik. Hann gat ekki greitt fyrir leigubíl. Málið er í rannsókn.

Lögreglustöðinni á Hverfisgötu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir og mögulega ölvaðan einstakling. Ekkert kemur meira fram um málið í dagbókinni.

Nokkuð var um að ökumenn væru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna, auk þess sem fimm voru teknir fyrir að aka án gildra ökuréttinda.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab