Gular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris
Gular viðvaranir eru í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og miðhálendinu.
Það verður suðaustan hvassviðri eða stormur sunnan- og vestanlands fram eftir degi. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, til dæmis nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi, við Esju og Hafnarfjall og á Snæfellsnesi. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi, að því er segir í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Veðurspá dagsins er þannig að spáð er suðaustan 13 til 23 m/s, hvassast í vindstrengjum á Suður- og Vesturlandi. Víða verður rigning, en þurrt um landið norðaustanvert. Dregur úr vindi eftir hádegi. Hlýnandi, hiti á bilinu 5 til 10 stig þegar kemur fram á daginn.
Suðaustan 10-18 m/s verða á morgun og rigning eða súld, en lengst af þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Hiti breytist lítið.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/65/92/1659298.jpg)