„Mér fannst það fremur kaldar kveðjur, verð bara að segja það“
433
Sunnudaginn 22. nóvember 2026 07:00
Aron Einar heiðraður fyrir leik. Mynd: DV/KSJ
Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.
Íslenska landsliðið vann tvo góða sigra, 5-0 gegn Búlgaríu og 3-0 gegn Lúxemborg, í C-deild Þjóðadeildarinnar á dögunum og tryggði sér sæti í B-deild.
Leikirnir voru gerðir upp í þættinum og Helgi sagði það koma á óvart að Gylfi Þór Sigurðsson hafi byrjað hvorugan leikinn.
„Maður hélt að Gylfi væri negldur í byrjunarliðinu, allavega í öðrum þessara leikja. En úrslitin hefðu vissulega ekki getað farið mikið betur,“ sagði Helgi.
„Það kom mér aðallega á óvart að hann skyldi ekki byrja í Búlgaríu. Í þessum seinni leik kemur mér aðallega á óvart að Aron Einar byrji ekki,“ sagði Hörður, en þetta var kveðjuleikur Arons. Hjörtur Hermannsson var kallaður inn í hópinn og byrjaði.
„Hann er valinn sem einn af fjórum hafsentum og tveir voru dottnir út. Þá hefði maður búist við því að þeir tveir sem voru í hópnum til viðbótar kæmu inn. Mér fannst það fremur kaldar kveðjur til Arons í þessum kveðjuleik, ég verð bara að segja það,“ bætti Hörður við.
„Ef þú ert valinn í hópinn hlýturðu að vera nær byrjunarliðinu en maður sem er ekki í hópnum, burtséð frá því að þetta hafi verið kveðjuleikur og allt það,“ sagði Helgi áður en Hörður tók til máls á ný.
„En þetta fór allt vel og Aron fékk fallega kveðjustund. Við erum að tuða til að tuða.“
Þátturinn er í spilaranum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗