„Það er bara sóun á hæfileikum Hákons“

Hákon Arnar Haraldsson.

„Hákon [Arnar Haraldsson] verður aldrei djúpur miðjumaður,“ sagði fyrrverandi knattspyrnu- og landsliðsmaðurinn Kári Árnason í samtali við mbl.is.

Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson hafa myndað miðjupar íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar.

Í þjálfaratíð Lars Lagerbäcks var miðjan hins vegar skipuð Aroni Einari Gunnarssyni og Gylfa Þór Sigurðssyni, sem léku einmitt við hlið Kára í gullaldarliði Íslands.

Allt öðruvísi leikmenn

„Aron og Gylfi eru allt öðruvísi leikmenn en Hákon og Ísak. Hákon er gríðarlega iðinn og hefur meira að segja verið að spila sem fremsti maður hjá Lille í Meistaradeildinni. Það er klárlega meiri vigt í Aroni og Gylfa, þeir eru stærri og sterkari, en Arnar vill hafa þetta svona og hann er þjálfarinn,“ sagði Kári.

„Hákon og Ísak eru frábærir fótboltamenn, en til þess að spila þessa stöðu þarftu ákveðinn aga. Staðsetningarnar eru líka mjög mikilvægar. Ísak hefur í raun alla burði til að verða mjög góður sem djúpur miðjumaður,“ sagði Kári.

Vill hafa hann framarlega

„Það er bara sóun á hæfileikum Hákons að ætla að láta hann spila sem djúpan miðjumann, svo við segjum það bara eins og það er. Hann er ofboðslega skapandi leikmaður og þú vilt hafa hann framarlega á vellinum. Hann er í frábæru formi og hleypur mikið, þannig að hann getur sinnt bæði varnar- og sóknarleiknum fyrir landsliðið.“

Ísland tryggði sér sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar í nýliðnum landsleikjaglugga og þar bíða sterkari mótherjar.

„Það er viðbúið að liðið verði minna með boltann í B-deildinni og þá gætu þeir þurft að verjast meira en þeir hafa þurft að gera. Ég vona að sjálfsögðu það besta og hef fulla trú á því að þeir ráði við þetta, en það verður klárlega stærsta prófraun liðsins,“ sagði Kári.

Ítarlegt viðtal við Kára Árnason má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins fimmtudaginn 19. nóvember eða með því að smella hér.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab