Hanna Stína færði náttúruna inn í glerskála Höfðatorgs

Hanna Stína innanhússarkitekt sá um heildarhönnun RÓÓT, þar sem mildir grænir tónar og gróður setja svip á rýmið. Samsett mynd

Í glerskálanum í Turninum við Höfðatorg var nýverið opnaður veitingastaðurinn RÓÓT. Þetta bjarta og fallega rými var endurhannað frá grunni og afraksturinn var veitingastaður sem boðar nýja nálgun á mat og matarupplifun þar sem bragð, fjölbreytni, gott hráefni og góð líðan fara saman.

Það var Hanna Stína innanhússarkitekt sem sá um hönnun rýmisins í heild og var verkefnið að skapa einstaka upplifun í umgjörð þar sem náttúra, hönnun og góður matur færu saman á vinnustað með hröðu flæði.

Dagsbirtan flæðir inn í glerskálann og dregur fram náttúrulega liti og áferð í innréttingunum. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

„Það var áskorun að vinna með þessa miklu lofthæð“

Miklar lofthæðir, stórir glerfletir og steyptir veggir settu svip sinn á glerskálann í Turninum á Höfðatorgi áður en Hanna Stína hófst handa. Rýmið var upphaflega útisvæði og grunnurinn því hrár.

„Það var áskorun að vinna með þessa miklu lofthæð, glerið og steypuna en okkur tókst að umbreyta rýminu í bjartan og gróðursælan veitingastað þar sem náttúruleg birta leikur lykilhlutverk. Við vildum líka skapa sterka tengingu við umhverfið úti. RÓÓT er í raun eins og risastórt gróðurhús,“ segir Hanna Stína.

Mjúk form og mildir grænir tónar einkenna húsgögnin sem voru sérhönnuð fyrir staðinn. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Mildir grænir tónar

Hanna Stína sá um hönnun verkefnisins frá upphafi til enda, grunnskipulag og mótun rýmisins, efnisval, lýsingu, sérhönnuð húsgögn og lokafrágang. Stór og náttúruleg, en viðhaldsfrí tré og gróður færa náttúruna inn í rýmið og mynda áhugaverða andstæðu við formfasta byggingarhlutana.

Viður, steinn og gróður mynda samfellda heild og tengja rýmið við náttúruna. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Bogadregnir, bólstraðir setbekkir mýkja ásýndina og mynda notaleg, afmörkuð setsvæði í opnum salnum. Mildir grænir tónar, terracotta, hlýr viður og náttúrusteinn með áberandi æðum bæta við hlýju og áferð. Húsgögn og skrautlýsing voru sérhönnuð fyrir staðinn, þar á meðal sófabekkir, borð, stólar og hangandi ljós.

„Hver einasti hlutur var hugsaður sem hluti af heildarmyndinni, með áherslu á form, hlutföll, efnisnotkun og samræmi,“ segir Hanna Stína.

Bólstraðir setbekkir í mildum tónum mýkja ásýnd salarins og afmarka notaleg setsvæði. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Andrúmsloftið tekur breytingum yfir daginn. Dagsbirtan skapar opið og lifandi umhverfi en hlýleg lýsing kvöldsins gerir rýmið notalegra og persónulegra. Þannig nýtist glerskálinn bæði sem hádegisstaður og fyrir fjölbreytta viðburði. Nú þegar hafa verið haldnir skemmtilegir og fjölbreyttir einkaviðburðir á RÓÓT en salurinn er leigður út utan hefðbundins opnunartíma.

Hlýir brúnir tónar bólstrunarinnar skapa mótvægi við glerið og steypuna.

Hlýir brúnir tónar bólstrunarinnar skapa mótvægi við glerið og steypuna. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Náttúrulegt og gott fyrir magann

Samhliða hönnun rýmisins hefur matarteymið mótað sérstöðu staðarins. Kjartan Gíslason, matreiðslumeistari og einn stofnenda Omnom, hefur verið einn af drifkröftunum í mótun RÓÓT ásamt Bjarka Frey Gunnlaugssyni.

Slagorð staðarins er „gut happy“ sem á íslensku mætti þýða sem „iðrakennd“ matargerð. Áhersla er lögð á bragðgóðan og nærandi mat, árstíðabundin hráefni og náttúrulega ferla á borð við gerjun.

Samhliða hönnun rýmisins hefur matarteymið mótað sérstöðu staðarins.

Samhliða hönnun rýmisins hefur matarteymið mótað sérstöðu staðarins. Ljósmynd/Róbert Arnar

Gróskumikill gróðurinn og birtan kalla fram tilfinningu fyrir því að sitja í stóru gróðurhúsi. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Látlaus húsgögn, hlýr viðarlitur og mjúk gluggatjöld skapa rólega umgjörð.

Látlaus húsgögn, hlýr viðarlitur og mjúk gluggatjöld skapa rólega umgjörð. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Fjölbreytt sætaskipan setur svip á salinn þar sem barstólar fá sitt pláss við barinn. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Litir og áferð matarins njóta sín vel í umhverfi þar sem náttúrulegir tónar ráða ferðinni. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Lýsingin var mikilvægur þáttur í að færa hlýju og nánd inn í háan glerskálann. Hangandi ljósin voru sérhönnuð fyrir RÓÓT og mynda hluta af heildarhönnun staðarins. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Áberandi æðar í grænum náttúrusteininum gefa yfirborðinu líf og tengjast litavali staðarins. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab