Ef eitthvað gerist er maður bara mamma
Guðný Árnadóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur ferðast með dóttur sína og kærasta á útileiki Kristianstad í Svíþjóð eftir að hún sneri aftur til keppni í haust.
Guðný eignaðist sitt fyrsta barn, dótturina Hildi Mjöll Pétursdóttur, 18. apríl. Hún sneri aftur inn á völlinn 13. september og hefur síðan leikið fimm leiki frá upphafi til enda.
„Hún kemur með í alla leiki eins og er á meðan hún er svona lítil. Kærastinn minn kemur með líka. Ég hef meira verið að ferðast sjálf með fjölskyldunni á útileikina.
Það eru ágætlega mikil ferðalög og akstur en við fáum mikinn tíma saman,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.
Kærasti hennar, Pétur Hrafn Friðriksson, fylgir þeim mæðgum og fjölskyldan keyrir saman á leikina. Guðný sagði vel hugsað um þau hjá Kristianstad.
„Þetta er smá púsluspil en allir eru rólegir yfir þessu og finnst þetta bara gaman.“
Hún sagði dótturina rólega og svefninn ekki hafa orðið að vandamáli, þótt hún svæfi ekki endilega alla nóttina.
„Annars hefði ég held ég ekki getað komið svona vel til baka,“ sagði Guðný.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/39/1693992.jpg)