Er algengt að fólk sætti sig við glatað samband því það vill ekki vera eitt?

Theodór Francis Birgisson ráðgjafi hjá Lausninni svarar spurningum lesenda.

Theodór Francis Birgisson ráðgjafi hjá Lausninni svarar spurningum lesenda. Ljósmynd/Aðsend

Theodór Francis Birgisson fjölskylduráðgjafi hjá Lausninni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá Guðrúnu sem spyr hvort hann haldi að fólk sé almennt mjög ástfangið eða hvort það vilji bara ekki vera eitt. 

Hæ, hæ. 

Theodór Francis, þú hefur í gegnum tíðina hlustað á fólk segja frá sínum innilegustu vandamálum í ástarlífinu. Hver heldurðu að sé stærsta lygi sem fólk segir sjálfu sér í samböndum? Er fólk í raun ástfangið af makanum sínum eða er það bara svo hrætt við að vera eitt að það sættir sig við samband sem gerir það óhamingjusamt?

Kveðja, 

Guðrún 

Sæl Guðrún og takk fyrir spurninguna. Ég held að ein stærsta lygi sem fólk segir sjálfu sér í ástarsamböndum sé að hlutirnir muni lagast af sjálfu sér. Að þetta sé bara svona eftir margra ára sambúð og að það sé kannski ekki hægt að búast við meiru.


Í starfi mínu hef ég í gegnum árin hitt ótal pör sem elska hvort annað en eru samt ekki hamingjusöm saman. Það er nefnilega mikill munur á því að elska einhvern og því að eiga gott samband við viðkomandi. Ástin er mikilvæg, en hún ein og sér dugir ekki til að halda sambandi góðu. Þar þarf líka að vera vinátta, virðing, nánd, öryggi og vilji beggja til að leggja sitt af mörkum.


Rannsóknir sýna að óttinn við að vera einn getur haft mikil áhrif á þær ákvarðanir sem við tökum í ástarsamböndum. Fólk sem óttast einmanaleikann er líklegra til að sætta sig við samband sem uppfyllir ekki þarfir þess og getur átt erfiðara með að taka ákvörðun um að fara, jafnvel þótt því líði ekki vel í sambandinu.


En ég held að við verðum að fara varlega í að alhæfa um þetta. Fólk heldur ekki endilega áfram í sambandi vegna þess að það þorir ekki að vera eitt. Þar geta komið til margar ástæður. Sameiginleg saga, börn, tryggð, fjárhagur, umhyggja fyrir makanum og ekki síst vonin um að hægt sé að finna aftur það sem eitt sinn var.


Ég hef líka séð mörg dæmi um að fólk hafi verið orðið ansi vonlítið um sambandið sitt en með því að byrja að tala saman af einlægni, hlusta hvort á annað og taka ábyrgð á eigin þætti í samskiptunum hafi því tekist að finna hvort annað aftur. Það sem mér finnst kannski sorglegast er þegar fólk er farið að sætta sig við að líða illa í sambandinu og telur það bara eðlilegan hluta af því að vera í langtímasambandi. Það er hægt að vera í sambandi og vera samt óskaplega einmana. Stundum er einmanaleikinn jafnvel sárari þegar við liggjum við hliðina á manneskjunni sem við þráum mest að finna tengingu við.

Ég held því að mikilvægasta spurningin sé ekki endilega hvort fólk sé enn ástfangið eða hvort það sé hrætt við að vera eitt. Mikilvægara er að spyrja: Hvernig líður okkur saman? Finnum við fyrir virðingu, hlýju og öryggi? Getum við verið við sjálf í sambandinu og upplifum við að við skiptum hvort annað máli? Ég myndi aldrei hvetja fólk til að gefast auðveldlega upp á sambandi sínu. En ég myndi heldur ekki hvetja neinn til að sætta sig við langvarandi óhamingju og vonast bara til að eitthvað breytist. Kannski er stærsta sjálfsblekkingin einmitt sú að við höldum að við þurfum að sætta okkur við að vera óhamingjusöm til þess að halda í ástina. Það þurfum við ekki. En við þurfum oft að vera tilbúin að horfast í augu við það sem er ekki að virka og gera eitthvað í því. Og ef báðir aðilar eru tilbúnir til þess er oft hægt að breyta miklu.

Kær kveðja, 

Theodór Francis Birgisson, fjölskylduráðgjafi. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Theodór spurningu HÉR. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab