Leita lungnakrabbameins með gervigreind

Húsnæði Clínico-sjúkrahússins í Teatinos-hverfinu í Vestur-Málaga, en formlega heitir sjúkrahúsið El Hospital Universitario Virgen de la Victoria. Dr. José Carlos Benítez Montañez krabbameinslæknir leiðir verkefni um notkun gervigreindar til að greina lungnakrabbamein mun fyrr en tíðkast hefur almennt. Ljósmynd/Wikipedia.org/Díaz Romero, Javier

Clínico-sjúkrahúsið í Málaga á Suður-Spáni og fleiri heilbrigðisstofnanir þar í borginni rannsaka nú snemmbúna greiningu lungnakrabbameins með fulltingi gervigreindar og ræðir dr. José Carlos Benítez Montañez krabbameinslæknir verkefnið við staðarblaðið Diario Sur.

Segir blaðið dr. Montañez óþreytandi vísindamann sem sæki ráðstefnur um gervallan heim til að færa heim til Málaga allar þær nýjungar sem veitt geti vonarglætu í baráttunni við þann sjúkdóm sem nú leggur æ fleiri jarðarbúa til hinstu hvílu – marga langt um aldur fram.

Yfir 1.000 lungnakrabbameinsæxli greinast í Málaga-héraði ár hvert og hefur meira en helmingur þeirra þá þegar myndað meinvörp. Segir dr. Montañez það því brýnt verkefni að koma á skimunaráætlun fyrir lungnakrabbamein á pari við þá sem nú þegar er starfrækt í tilfellum ristil- og brjóstakrabbameins.

Spá fyrir um áhættu tiltekinna sjúklinga

Leiðir læknirinn nú rannsóknarverkefni nokkurra deilda Clínico-sjúkrahússins með það fyrir augum að stuðla að mjög snemmbúinni greiningu lungnakrabbameins og nota dr. Montañez og samstarfsfólk hans reiknirit, eða algóritma, byggt á gervigreind til að spá fyrir um áhættu tiltekinna sjúklinga á að fá sjúkdóminn út frá sjúkrasögu og snemmbúnum einkennum sem hið mannlega auga greinir síður.

Sem fyrr segir hefur meira en helmingur lungnakrabbameinsæxla í Málaga-héraði þegar dreift sér með meinvörpum þegar þau uppgötvast, nákvæmt hlutfall er 53 prósent, og svo því sé haldið til haga eru meinvörp ný illkynja æxli sem myndast þegar krabbameinsfrumur losna frá upprunalegu æxli, svokölluðu frumæxli, berast með blóð- eða sogæðakerfinu til annarra hluta líkamans og taka sér þar bólfestu.

Greinist meinið á mun snemmbúnara stigi má lækka dánartíðni. Skimunarverkefni eru þegar í framkvæmd víðs vegar um Spán, svo sem Cassandra-verkefnið, tilraunaverkefni á landsvísu um skimun á sjúkrahúsum undir stjórn lungnasérfræðinga og brjóstholsskurðlækna.

Greina sjúkrasögu og einkenni óháð aldri

Clínico-sjúkrahúsið vill hins vegar grípa fyrr inn í sjúkdómsferlið, þegar á heilsugæslustigi, með aðstoð gervigreindarreikniritsins sem greinir sjúkrasögu og einkenni óháð aldri og ákvarðar hverjum sé best að fara þegar í röntgenmyndatöku eða svokallaða lágskammta-tölvusneiðmyndatöku.

Sú kallast á ensku low-dose computed tomography, skammstafað LDCT, og er sérhæfð myndgreiningarrannsókn þar sem notast er við mun minna magn jónandi röntgengeislunar en í hefðbundinni tölvusneiðmyndatöku í því augnamiði að ná nákvæmum þverskurðarmyndum af innri líffærum, einkum lungum í þessu tilfelli.

Vinnur Clínico-sjúkrahúsið að verkefninu í samstarfi við heilsugæslustöðvar í Teatinos-hverfinu í Vestur-Málaga sem sjá um að fá sjúklinga til þátttöku. Sjúkrahúsið er í nánu samstarfi við Ibima, lífeðlisfræðirannsóknastofnun Málaga, rannsóknarhópa frá verkfræði- og fjarskiptadeildum auk teyma sem jafnvel koma frá hagfræði- og viðskiptafræðideild Háskólans í Málaga, UMA, sem til húsa er í Teatinos.

„Okkur vantar eitthvað þessu líkt“

Dr. Montañez útskýrir fyrir blaðamanni Diario Sur að í flestum tilfellum greinist lungnakrabbamein ekki fyrr en það er komið á meinvarpastig, „sem er ólæknandi, þannig að við reynum að halda því niðri sem langvinnum sjúkdómi“.

Nú séu nýstárlegar meðferðir í þróun sem beinist að því að beita núverandi meðferðum við lungnakrabbameini á mun fyrri stigum, þegar hægt sé að „fjarlægja sjúkdóminn með skurðaðgerð eða meðhöndla hann með róttæku inngripi sem felur venjulega í sér lyfjameðferð og geislameðferð á sama tíma“, en með lækningu að markmiði, segir dr. Montañez.

Í Bandaríkjunum og á Ítalíu finnast lungnaskimunaráætlanir svipaðar þeim sem þegar eru til staðar fyrir brjósta- og ristilkrabbamein. „Okkur vantaði eitthvað þessu líkt fyrir lungnakrabbamein,“ segir læknirinn.

Fyrri rannsóknir ekki sýnt fram á auknar lífslíkur

Hann kveður fyrri rannsóknir nær aldrei hafa sýnt fram á auknar lífslíkur í kjölfar skimunar, en á undanförnum árum hafi tvær sérstaklega athyglisverðar rannsóknir komið fram. Önnur þeirra, sem framkvæmd var í Hollandi, sýndi að ef lágskammta-tölvusneiðmyndatökur væru framkvæmdar á áhættuhópum, svo sem reykingafólki reykt hefði meira en tíu sígarettur á dag í 30 ár, fólki yfir fimmtugu og svo framvegis, sem þó hefði ekki enn þróað með sér krabbamein, lækkaði dánartíðnin um 24 prósent.

Krabbamein greindist hjá 2,6 prósentum hópsins.

Hugmynd dr. Montañez er að hefjast handa enn fyrr. Hefur hann nú hlotið 30.000 evra, 4,1 milljónar króna, styrk frá Seom, spænska krabbameinslæknafélaginu, til að hrinda verkefninu af stað.

Rannsakendur við Clínico-háskólann hafa notað gervigreindartól og gríðargögn, eða big data, til að greina sjúkraskrár sjúklinga sem þegar eru með lungnakrabbamein, í því skyni að bera kennsl á snemmbúin einkenni. Markmiðið er að afhjúpa falin mynstur sem annars gætu farið fram hjá læknum.

Hafa þeir reykt fleiri en tíu sígarettur á dag?

Með því að nota þessi mynstur hafa vísindamennirnir í samstarfi sínu þróað áhættureiknirit. Samtímis þessu munu heilsugæslustöðvar hafa samband við sjúklinga á öllum aldri sem samþykkja að taka þátt.

Eftir að hafa undirritað samþykkisyfirlýsingu svara þeir ýmsum spurningum í síma um einkenni sín – um aldur, hvort þeir hafi reykt, hvort þeir hafi reykt fleiri en tíu sígarettur á dag, hvort þeir hafi leitað á bráðamóttöku vegna hósta síðustu mánuði og annað ámóta.

Reikniritið, gervigreindin, mun í framhaldinu ákvarða hvort viðkomandi sjúklingur sé í áhættuhópi á að fá lungnakrabbamein eður ei og í framhaldinu fer hann í lágskammta-tölvusneiðmyndatöku eða röntgenmyndatöku á Clínico á frumstigi sjúkdómsins sem læknarnir telja að geti aukið lífslíkur hans margfalt. Þetta er helsta framlag rannsóknarinnar að sögn dr. Montañez.

„Markmið okkar er að finna alla þessa sjúklinga áður en meinvörp myndast þannig að við höfum möguleika á að lækna þá,“ segir dr. José Carlos Benítez Montañez krabbameinslæknir að lokum um verkefnið í Málaga.

Diario Sur

Olive Press News Spain

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab