Sannaði gervigreind 170 ára stærðfræðitilgátu?

Bandarísk-tyrkneski stærðfræðingurinn Levent Hasan Ali Alpöge starfar hjá Anthropic og telur sig hafa fengið gervigreindina Claude til að sanna Riemann-tilgátuna frá 1859. Sönnunin er 250.000 blaðsíður svo líklega mun hlutabréfastorminn kringum Anthropic hafa lægt þegar fræðingar verða búnir að renna yfir plaggið. Ljósmynd/Wikipedia.org/Marlene Ruf

Levent Alpöge, stærðfræðingur og starfsmaður bandaríska gervigreindarfyrirtækisins Anthropic, heldur því fram að hann hafi notað Claude, hina alsjáandi gervigreindarvölvu fyrirtækisins og flaggskip, til að sanna hina frægu Riemann-tilgátu stærðfræðinnar frá árinu 1859.

Kveðst hann hafa notað sex vikur til að fá Claude til að búa til sönnun á tilgátunni sem, sé hún rétt, er ein merkasta sönnun sögunnar á sviði stærðfræði að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

En hver er tilgáta Riemanns og hver var hann?

Bernhard Riemann var þýskur stærðfræðingur á 19. öld sem árið 1859 setti fram tilgátu sem staðið hefur ósönnuð síðan, eitt af sjö svokölluðum þúsaldarvandamálum stærðfræðinnar, og hefur milljón dala verðlaunum verið heitið hverjum þeim sem tekst að sanna hana.

Gengur tilgátan út á að frumtölur, eða prímtölur, tölur sem aðeins má deila með sjálfum sér og tölunni 1, fylgi ströngu, en földu, mynstri. Byggir tilgátan á stærðfræðiformúlunni z-falli Riemanns sem felur í sér upplýsingar um dreifingu frumtalna.

Tilraun til mannamáls

Á venjulegu mannamáli er það fullyrðing tilgátunnar að allir hinir dularfullu lykilpunktar í formúlunni, svokallaðar „óaugljósar núllstöðvar“, raðist í fullkomna beina línu á stærðfræðilegu korti þar sem svokallaður raunhluti er ½.

Sé tilgáta Riemanns sönn staðfestir hún að frumtölur dreifist eins jafnt og skipulega og mögulegt er út í óendanleikann. Hafi þetta verið réttur skilningur stærðfræðingsins þýska hefur það töluverð áhrif á æðri stærðfræði og einnig á nútímatækni þar sem netöryggi og dulkóðun byggja að miklu leyti á eiginleikum stórra frumtalna.

Er þetta ekki sáraeinföld útskýring? Kannski fyrir stærðfræðihausa heimsins.

Fullyrðing Alpöge kemur í kjölfar þess að gervigreindarfyrirtæki á borð við OpenAI hafa undanfarna mánuði keppst við að tilkynna um tugi lausna á flóknum stærðfræðidæmum sem hafa vafist fyrir fræðimönnum áratugum saman.

Anthropic ræðst í stærsta frumútboð hlutabréfa sögunnar í vikunni.

Anthropic ræðst í stærsta frumútboð hlutabréfa sögunnar í vikunni. AFP/Nicolas Tucat

Hörmuleg tímasetning

Sönnunin á Riemann-tilgátunni, sem Alpöge lagði fram á föstudag, fannst með útgáfu af Claude sem ekki er aðgengileg almenningi enn sem komið er – og verður kannski aldrei, við því hefur Anthropic ekki gefið skýr svör.

Alpöge kveðst hafa sent Dario Amodei forstjóra Anthropic skilaboð á sunnudag og spurt hann beint hvernig hann gæti tilkynnt um uppgötvunina.

„Núna er hörmuleg tímasetning,“ segir Alpöge og vísar þar til skráningar Anthropic á hlutabréfamarkað sem gekk vel á fimmtudag, verr á föstudag. „Hefði mér verið það unnt hefði ég klárað þetta allt miklu fyrr,“ segir hann um sönnun tilgátunnar frá 1859 sem skyndilega er orðin dagaspursmál árið 2026.

„Ég ber augljóslega einn ábyrgð á því að mér fannst ég einfaldlega ekki geta lifað við að bíða enn lengur. Það er auðvelt að tortryggja tímasetninguna, en slíkar vangaveltur eru rangar,“ bætir stærðfræðingurinn við.

250.000 síðna sönnun

Heildarsönnunin í textaformi, en hana lagði Alpöge fram í forritunarmálinu Lean, sem notað er til að staðfesta stærðfræðisannanir, er yfir 250.000 blaðsíður að lengd og mætti gera því skóna að fáir læsu þann texta á meðan nokkurra daga hlutabréfasveifla gengur yfir.

Hinn kunni stærðfræðingur Terence Tao sagði á föstudag að enn væri langt til lands með staðfestingu tilgátunnar.

„Ég gef mér að nokkurn tíma taki að melta þetta þótt í þessu tilfelli höfum við að minnsta kosti mennskan höfund til að eiga samskipti við til að aðstoða við það verkefni,“ sagði Tao, en enginn mennskur höfundur kom að stórum stærðfræðisönnunum sem gerðar voru fyrr á þessu ári með gervigreind.

Þýski stærðfræðingurinn Bernhard Riemann. Snýr hann sér við í gröfinni eftir sönnun Claude? Ljósmynd/Wikipedia.org/sil.si.edu

OpenAI gumar af Navier-Stokes-jöfnunum

Í september hélt gervigreindarfyrirtækið OpenAI því fram að starfsmenn, sem notuðu lokaða útgáfu af gervigreindarforritum fyrirtækisins, hefðu getað leyst hluta af alræmdu og erfiðu vandamáli á aðeins 88 klukkustundum. Vandamálið var hluti af Navier-Stokes-jöfnunum svokölluðu sem snúast um hvernig vökvar hreyfast.

Yfir 10.000 gervigreindarerindrekar, svokallaðir AI agents á ensku, forrituð vélmenni sem starfa að hluta til sjálfstætt, voru sett í verkefnið sem var liður í þjálfun gervigreindar.

Enn á þó eftir að staðfesta hvort sönnunin á Navier-Stokes, sem OpenAI birti, sé rétt, hún kveikti gagnrýnisraddir innan háskólasamfélagsins og stærðfræðisamtaka um notkun gervigreindar til að leysa stærðfræðidæmi.

Þá hefur Anthropic haldið því fram í þessari næstum hatrömmu samkeppni að fyrirtækið hafi einnig náð öðrum árangri varðandi lausnir í stærðfræði og eðlisfræði.

Efla vísindin alla dáð?

Hópur stærðfræðinga gaf út að það væri „skaðlegt fyrir stærðfræðivísindin“ þegar gervigreindarfyrirtæki stærðu sig af miklum lausnum til að sýna fram á hversu háþróaðar vörur þeirra væru orðnar.

„Við verðum vitni að almennri ógn við hugverkavinnu þar sem misræmi er á milli útkomunnar úr notkun gervigreindar og upphaflegum tilgangi hennar,“ sögðu fræðimenn þessir í sameiginlegu bréfi sínu um málið.

Mánuði síðar birti OpenAI það sem fyrirtækið kallaði lausnir, sannanir eða miklar framfarir í 372 öðrum óleystum stærðfræðivandamálum.

Taka mun mánuði, ef ekki meira, fyrir sérfræðinga að fara yfir þær fullyrðingar með það fyrir augum að sanna gildi þeirra.

Takist þeim það þá nokkurn tímann, um það verður ekkert fullyrt.

BBC

Scientific American

The New York Times

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab