Opnað á ný tveimur vikum eftir að allt eyðilagðist
Nytjamarkaður ABC barnahjálpar opnaði í dag í Faxafeni 14 en fyrra húsnæði markaðarins varð fyrir miklu tjóni í eldsvoða fyrir aðeins tveimur vikum síðum.
Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, segir opnunina hafa gengið vonum framar eins og síðustu tvær vikurnar í heild sinni.
Framkvæmdastjórinn segir nytjamarkaðinn vera nytjamarkaðinn halda hjálparsamtökunum á lofti enda sé um að ræða aðra mikilvægustu tekjulind ABC barnahjálpar, á eftir beinum fjárstyrkjum foreldra til barna.
Hafði samband strax í kjölfar brunans
Vel hefur gengið núna dagana fyrir opnunina að fá nýjar vörur á markaðinn og annan nauðsynlegan búnað. Tjónið á Smiðjuveginum eftir brunann var þess eðlis að nær ekkert sem var þar inn var talið nothæft.
„Það var ekkert sem við gátum nýtt. Við tókum nokkrar fataslár, pússuðum upp og máluðum, af því að það er erfitt að nálgast þær. Það var það eina sem við tókum með okkur. Allt annað var ónýtt af sóti og reyk.“
Hið nýja húsnæði við Faxafen er hentugt undir starfsemina að sögn Hrannar. Húsnæðið datt í raunina í hendurnar á samtökunum strax í kjölfar brunans.
„Umsjónarmaður þessa húsnæðis sendi mér póst sama dag og bruninn var og sagðist vera með tilbúið húsnæði tímabundið. Við fengum það nægilega lengi til þess að það væri þess virði að hoppa þarna inn en svo mun tíminn bara leiða í ljós hve lengi við verðum þarna.“
Viðgerðir taka marga mánuði
Hrönn segir ljóst að marga mánuði muni taka að laga húsnæðið sem brann á Smiðjuvegi en þó er ekki útilokað að hennar mati að nytjamarkaðurinn færi sig þangað aftur. Hún ítrekar þó að húsnæðið í Faxafeni henti mjög vel.
„Húsnæðið sem við erum í núna hentar okkur að mörgu leyti. Þetta er góð staðsetning, vörumóttakan er góð og vinnuaðstaðan er þægileg. Svo var húsnæðið tilbúið, það voru hillur, innkaupakörfur og svo margt á staðnum sem við gátum nýtt. Enda er þetta náttúrulega verslunarhúsnæði.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


