Hin kaldeyga skepna skepnanna

Annar grjótharður, Leedsarinn Norman Hunter, liggur eftir viðskipti við Peter Storey. Takið eftir augnaráðinu! ​ Ljósmynd/Arsenal.com

„Galdurinn fólst í því að koma að þeim eins snemma og hægt var, láta til skarar skríða af fullum þunga, veita þeim rækilega útreið – láta þeim líða eins og þeir hefðu lent í bílslysi eða skollið á múrvegg.“

Þannig lýsti hinn eitilharði Peter Storey leikstíl sínum hjá Arsenal í sexunni og sjöunni í endurminningum sínum, True Storey: My Life and Crimes as a Football Hatchet Man, þegar ófáir leikmenn í Englandi og Evrópu kviðu því að mæta honum á velli. Og svo bætti hann við: „Ég mun aldrei reyna, eða svo mikið sem byrja á því, að afsaka það sem ég gerði í fótbolta.“

Storey, einn mesti harðjaxlinn í sögu ensku knattspyrnunnar, hélt á fund feðra sinna í vikunni, 81 árs að aldri.

Þessi leikstíll var engin tilviljun. Öll lið sem ætluðu sér einhverja hluti voru með harðjaxl í sínum röðum. Mann sem fékk mótherjann til að skjálfa á beinunum og svelgjast á munnvatninu – fyrir leik, meðan á honum stóð og eftir. Ekki var verra ef trufla tókst svefninn. Chelsea hafði Ron „Chopper“ Harris, Liverpool Tommy Smith, Leeds United tefldi fram Norman „Leggjabrjóti“ Hunter og Manchester United Nobby Stiles, svo einhverjir séu nefndir.

Harðastur af þeim öllum 

Mögulega var Storey harðastur af þeim öllum. Alltént gaf Chopper Harris honum viðurnefnið „skepna skepnanna“ – og hefur ábyggilega ekki undanskilið sjálfan sig í því samhengi. Í endurminningum sínum rifjar Storey upp að hann hafi einnig verið kallaður leigumorðinginn, böðullinn, yfirgangsseggurinn, fanturinn, sá trýnótti (þar sem þefaði svo auðveldlega upp veikleika andstæðinga sinna) og svona mætti lengi telja. Ætli „kaldeygur“ hafi þó ekki fest best við hann enda óttuðust margir ekki tæklingarnar mest, heldur ískalt augnaráðið.

„Á tímum „harðjaxlanna“ í sjöunni var Storey í sérflokki – og ljósmynd af honum, þar sem hann horfir niður á Norman „Leggjabrjót“ Hunter liggjandi á vellinum, þótti lýsa vel viðhorfi hans til þeirra myrkraverka sem tíðkuðust á þeim tíma,“ segir í minningarorðum um Storey á vefsíðu Arsenal. Í endurminningunum kveðst Storey þó alltaf hafa verið sanngjarn og minnist þess ekki að hafa beinbrotið mann eða slasað illa.

Nánar er fjallað um Peter Storey í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.  

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab