Ganga í skrokk á strætisvagnstjórum

Strætisvagn í Ósló þar sem almenningssamgöngufyrirtækið Ruter annast rekstur vagnanna. Vagnstjórar víða um Noreg kvíða jólahlaðborðatíðinni, en árásir á þá eiga sér líka stað að sumarlagi þegar hátíðir og tónleikar eru víða og pupullinn kófdrukkinn. Ljósmynd/Wikipedia.org/Ralf Roletschek

„Einstaklingur undir áhrifum vímuefna hrækti á mig og sló mig þannig að ég féll í jörðina fyrir utan vagninn. Þar sem ég lá var sparkað í andlitið á mér,“ segir strætisvagnstjóri í Noregi við ríkisútvarpið þarlenda NRK.

Maðurinn kýs að koma ekki fram undir nafni, en atvikið fékk verulega á hann og var hann í veikindaleyfi um tíma eftir að farþega í vagni hans svall móður af einhverjum ástæðum og tók gremju sína út á vagnstjóranum.

Saga þessa vagnstjóra er ekkert einsdæmi í Noregi og nú höfðar stéttarfélag atvinnubílstjóra til samvisku þeirra sem úti eru á galeiðunni þegar eitt alræmdasta tímabil almennrar ölvunar í Noregi fer í hönd – tími jólahlaðborða. Í Noregi þekkjast árshátíðir á útmánuðum að íslenskum sið lítt, jólahlaðborðin eru alfa og ómega skemmtanalífs á vegum norskra fyrirtækja – því miður með skuggahliðum sem orðið hafa tilefni ófárra lögreglu- og dómsmála í ranni frænda okkar.

Þremur af hverjum tíu hótað

Nýjar tölur frá svokölluðu Atvinnuökumannamælaborði, Yrkestrafikkbarometeret, sem stéttarfélagið Yrkestrafikkforbundet, YTF, heldur úti segja heldur dapra sögu. Þremur af hverjum tíu strætisvagnstjórum hefur verið hótað við störf sín og einn af hverjum tíu hefur hreinlega verið laminn.

YTF stóð fyrir könnun sem tæplega 4.000 ökumenn leigubifreiða og strætisvagna svöruðu og sýnir hún að margir bílstjórar hafa lent í aðstæðum, sem þeir síður kjósa, síðasta árið, ekki bara nú þegar jólahlaðborðin nálgast óðfluga.

Ove-Jonny Fjellestad er aðaltrúnaðarmaður YTF fyrir strætisvagnabílstjóra hjá Boreal, fyrirtæki sem meðal annars rekur strætisvagna Kristiansand í Suður-Noregi, og honum líst ekki á tölfræðina.

„Þetta sýnir raunveruleikann í daglegu starfi okkar strætisvagnabílstjóra og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Fjellestad við NRK.

Sumarhátíðir veki einnig ugg

Bætir hann því við að það sé ekki aðeins tímabil jólahlaðborða sem sé krefjandi. „Á sumrin geta það verið farþegar sem sækja hátíðir eða aðra viðburði. Einstaklingar sem glíma við vímuefnavanda og geðræn vandamál geta einnig verið áskorun,“ segir trúnaðarmaðurinn sem er kunnugt um nokkra bílstjóra sem orðið hafa fyrir ofbeldi sem geti haft miklar og slæmar afleiðingar fyrir þá.

„Það endar oft með veikindaleyfi og fjarvistum frá vinnu. Það bitnar á nætursvefninum og getur haft áhrif á fjölskyldulífið,“ segir hann auk þess sem bílstjórar upplifi óöryggi sem hann furðar sig ekki á.

„Við sitjum í búri í ökumannssætinu í bílbelti. Við höfum takmarkaða möguleika á að verja okkur og getum auðveldlega fundið til varnarleysis,“ segir Fjellestad sem enn fremur greinir frá því að könnun YTF segi ekki allt. Þar sé skuggatölfræði að finna.

Ekur ekki mikið um nætur

Salih Salihi, sem ekur leigubifreið í Kristiansand, segist hafa lent í óþægilegum atvikum áður, ekki á þessu ári þó.

„Það er kannski vegna þess að ég ek ekki svo mikið á nóttunni,“ segir hann.

Bílstjórinn, sem sleginn var niður fyrir utan vagninn og segir af hér í upphafi fréttar, er kominn aftur til vinnu, en segir atvikið enn hafa sín áhrif. Hann ætli sér að minnsta kosti ekki að starfa við akstur fram til þess er hann nær eftirlaunaaldri.

„Mér finnst þetta ekki öruggt,“ segir hann og biðlar til farþega að minnast þess að eklarnir séu í vinnunni til að þjóna samfélaginu.

„Við viljum að borin sé virðing fyrir starfinu sem við vinnum og við viljum að fólk hugsi út í hvernig það vill sjálft láta koma fram við sig í vinnunni,“ segir hann.

Trude Sande formaður YTF segir að sumir bílstjórar séu með böggum hildar yfir komandi hlaðborðum fyrir hátíð ljóss og friðar og biður fólk í skemmtanalífinu að gæta bílstjóranna. Ljósmynd/YTF

Oft einir með ofurölvi farþegum

Trude Sande formaður YTF segir að sumir bílstjórar séu með böggum hildar yfir komandi hlaðborðum fyrir hátíð ljóss og friðar og biður fólk í skemmtanalífinu að gæta bílstjóranna.

„Margir farþegar hafa drukkið áfengi og bílstjórarnir eru oft einir með þeim,“ segir hún, en Fjellestad hjá Boreal segir að mikið áfengi geti valdið því að sumir verði dónalegir og árásargjarnir.

„Það er ekki auðvelt að eiga við erfiða farþega á sama tíma og við ökum strætisvagni,“ segir hann og kveðst upplifa að stjórnendur strætisvagnafyrirtækisins hafi fullan skilning á áskorununum og segir auk þess bílstjórum sem á þurfa að halda fylgt eftir og þeim boðin aðstoð.

Hefur YTF gefið út fimm hollráð fyrir ferð fólks heim af jólahlaðborðum vinnustaða sinna eða með fjölskyldum sínum eða vinum og eru sem hér segir:

  • Hafðu miða eða greiðslu til reiðu. Mörg ágreiningsmál byrja á rifrildi um verð eða miða.
  • Kvartaðu daginn eftir. Ef þú ert ósátt(ur) við verðið skaltu hafa samband við fyrirtækið daginn eftir. Ekki rífast við bílstjórann um miðja nótt.
  • Hafðu hendur og athugasemdir fyrir sjálfa(n) þig. Líka þegar þér finnst þú vera fyndin(n).
  • Láttu vita í tæka tíð ef þér verður óglatt. Stutt stopp er betra en löng þrif.
  • Passið upp á hvert annað. Ef þú sérð einhvern áreita bílstjórann skaltu láta vita. Ef hætta skapast skaltu hringja í 112.

NRK

NRK-II (í fangelsi fyrir að skalla vagnstjóra)

NRK-III (sló ökumanninn í andlitið eftir ágreining um greiðslu)

Avisen Kristiansand (dæmdur til samfélagsþjónustu)

Stavanger Aftenblad (krefst áskriftar) (sló ökumanninn ítrekað)

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab