Óhugnanleg þróun á paradísareyjunni Balí – Rússneskir glæpahópar sagðir vaða uppi

Skipulögð glæpastarfsemi er sögð hafa færst verulega í aukana á indónesísku ferðamannaeyjunni Balí á undanförnum árum.

Rússneskir og aðrir austur-evrópskir glæpahópar eru sagðir hafa komið sér þar fyrir og stunda meðal annars fíkniefnaframleiðslu, fjárkúganir og mannrán. Sérfræðingar vara við því að saklausir ferðamenn geti orðið fórnarlömb átaka glæpagengja.

Breska blaðið The Sun fjallar ítarlega um þróunina í dag. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið vísar til fjölgaði skráðum brotum tengdum erlendum ríkisborgurum á Balí um 16 prósent árið 2024 og voru þau þá orðin rúmlega 226 talsins.

Afskorið höfuð fannst á strönd

Eitt óhugnanlegasta málið sem komið hefur upp tengist hinum 28 ára gamla Úkraínumanni Igor Komarov, sem var rænt á Balí í febrúar síðastliðnum.

Komarov, sem sagður var sonur úkraínsks mafíuforingja, var í fríi á eyjunni ásamt kærustu sinni þegar honum var rænt. Mannræningjarnir sendu myndband þar sem hann sást illa leikinn og grátbað foreldra sína um að greiða lausnargjald sem nam um milljarði íslenskra króna.

Nokkrum dögum síðar fundust sundurlimaðar líkamsleifar í sjónum við eyjuna. Afskorið höfuð fannst einnig við ströndina og hefur fundurinn verið tengdur mannráni Komarovs í fréttum. Ekki kemur skýrt fram í umfjöllun The Sun hvort kennsl hafi verið borin á líkamsleifarnar.

Interpol gaf í kjölfarið út alþjóðlega handtökutilkynningu vegna fimm einstaklinga sem grunaðir eru um aðild að málinu.

Málið er ekki einsdæmi. Í janúar 2025 réðst hópur níu manna, sem sagðir voru rússneskir glæpamenn, á úkraínskan ríkisborgara. Honum var haldið föngnum í villu á Balí og hann barinn þar til hann lét af hendi rafmyntir að verðmæti um 180 þúsund sterlingspunda.

Fíkniefnaframleiðsla í lúxusvillum

Samkvæmt umfjöllun The Sun hafa glæpahópar nýtt sér mikinn ferðamannastraum og tiltölulega auðveldan aðgang að eyjunni til að byggja upp starfsemi sína.

Indónesísk yfirvöld hafa meðal annars upplýst um fíkniefnaframleiðslu í lúxusvillum. Í mars voru tveir Rússar handteknir, grunaðir um að hafa framleitt fíkniefnið mefedrón í lúxusvillu á eyjunni.

Í júní voru tveir aðrir rússneskir ríkisborgarar handteknir vegna gruns um fíkniefnasmygl eftir eftirför lögreglu. Ökumaðurinn ók á miklum hraða og slasaði nokkra vegfarendur, samkvæmt upplýsingum indónesískra yfirvalda.

Leslie Holmes, sérfræðingur í skipulagðri glæpastarfsemi, segir ástandið alvarlegt. Hann heldur því jafnframt fram að spilltir lögreglumenn hafi aðstoðað glæpamenn, meðal annars með því að vara þá við fyrirhuguðum lögregluaðgerðum.

Óttast afleiðingar fyrir ferðaþjónustuna

Mark Galeotti, annar sérfræðingur í skipulagðri glæpastarfsemi sem The Sun ræðir við, segir Balí hafa orðið að eftirsóttum bækistöðvum glæpahópa, sem nýti eyjuna til að stunda ólöglega starfsemi bæði innan Indónesíu og utan.

Holmes varar við því að þróunin geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir ferðaþjónustuna, sem er ein helsta undirstaða efnahagslífs Balí.

Hann segir sérstaklega varhugavert að saklausir ferðamenn geti lent í átökum glæpahópa án þess að hafa nokkur tengsl við starfsemi þeirra.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab